Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Atvinnuvegaráðuneytið

Málaflokkur

Landbúnaður, Skattar - gjöld - tollar, Innflutningur

Undirritunardagur

27. mars 2026

Útgáfudagur

17. apríl 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 375/2026

27. mars 2026

REGLUGERÐ

um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss.

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar atvinnuvegaráðherra tollkvótum samkvæmt II. kafla í stofnsáttmála Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríkjanna) varðandi landbúnað, með síðari breytingum, á grundvelli 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á afurðum upprunnum í Noregi og Sviss.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

  Vara Tímabil Vörumagn Verðtollur Magntollur
Tollskrárnr.:     kg % kr./kg
ex0210.xxxx Nautgripakjöt – vöruliður 0210: 01.07.26-30.06.27 10.000 0 0
  Kjöt af dýrum af nautgripakyni:        
0210.2001 -- Beinlaust     0 0
0210.2009 -- Annars     0 0
0406.xxxx Ostur og ystingur: 01.07.26-30.06.27 15.000 0 0

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt ákvæðum búvörulaga, nr. 99/1993. Tollkvótar eru auglýstir á vefsíðu atvinnuvegaráðuneytisins þar sem tilgreindir eru skilmálar og fram koma frekari upplýsingar um framkvæmd úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt. Einnig er heimilt í stað ábyrgðaryfirlýsingar að greiða andvirði tollkvóta á reikning Fjársýslunnar og láta kvittun fylgja tilboðsgögnum á atrn@atrn.is. Umsóknar- og tilboðsferli vegna úthlutunar tollkvótans fer fram með rafrænum hætti á vefkerfinu tollkvoti.is.

Tilboðsgjafi sá er fær úthlutað tollkvóta skal leysa hann til sín með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs. Úthlutun er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, nr. 1250/2019 .

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga, nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála, nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 5. mgr. 12. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og 65. gr. B búvörulaga, nr. 99/1993. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. júní 2027.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 27. mars 2026.

Hanna Katrín Friðriksson.

Arnar Freyr Einarsson.

B deild — Útgáfudagur: 17. apríl 2026

Tengd mál