Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hvalfjarðarsveit

Málaflokkur

Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, Hundar

Undirritunardagur

28. febrúar 2008

Útgáfudagur

29. febrúar 2008

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 213/2008

28. febrúar 2008

GJALDSKRÁ

fyrir hundahald í íbúakjörnum í Hvalfjarðarsveit.

1. gr.

Árlegt leyfisgjald fyrir að halda hund í íbúakjörnum í Hvalfjarðarsveit (sbr. 1. gr. samþykktar um hundahald í Hvalfjarðarsveit) er kr. 6.000. Þegar hundur er skráður er greitt skráningargjald kr. 3.000. Þeir sem greiða skráningargjald þurfa ekki að greiða árlegt leyfisgjald sama ár og hundur er skráður. Gjald greiðist á gjalddaga 1. maí en eindagi er 30. maí ár hvert.

2. gr.

Innifalið í leyfisgjaldi er ormahreinsun, trygging, örmerking auk umsýslugjalda sveitar­félagsins.

3. gr.

Við afskráningu hunds ber að endurgreiða árlegt leyfisgjald í réttu hlutfalli við þá mánuði sem eftir eru af árinu.

4. gr.

Allur kostnaður vegna handsömunar hunda sem teknir eru lausir s.s. útkallskostnaður, bifreiðakostnaður og búrleiga skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunds sé um leyfislausa hunda að ræða. Til viðbótar útlögðum kostnaði skal leyfishafi eða umráðamaður greiða föngunargjald. Föngunargjald er kr. 4.500.

5. gr.

Um vexti af vangreiddum gjöldum samkvæmt gjaldskrá þessari gilda almennar reglur. Um innheimtu gjalda fer samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Gjöld samkvæmt gjaldskránni má innheimta með fjárnámi.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er samþykkt af sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar þann 5. júní 2007 með vísun til heimilda í samþykkt um hundahald í Hvalfjarðarsveit, nr. 106/2008 og sam­kvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og tekur nú þegar gildi.

Hvalfjarðarsveit, 28. febrúar 2008.

Hallfreður Vilhjálmsson

oddviti.

B deild - Útgáfud.: 29. febrúar 2008

Tengd mál