Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Málaflokkur

Orkumál

Undirritunardagur

28. júní 2026

Útgáfudagur

30. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 64/2026

28. júní 2026

LÖG

um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004 (jöfnunargjald).

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. a laganna:

  1. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Dreifiveitur greiða jöfnunargjald í sama hlutfalli og afhent raforka til almennra notenda í eftirfarandi flokkum: Forgangsorku, forgangsorku umfram 1.000 megavattstundir, skerðanlegri orku, skerðanlegri orku umfram 1.000 megavattstundir. Almennir notendur dreifiveitna greiða jöfnunargjald samkvæmt grein þessari af raforku sem er afhent frá dreifiveitu. Dreifiveitur skulu annast innheimtu jöfnunargjalds frá almennum notendum.
  2. 3. mgr. orðast svo:
    Fjárhæð jöfnunargjalds er 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku er 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað upp að 1.000 megavattstundum á almanaksári og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað sem er 1.000 megavattstundir á almanaksári eða meiri. Raforkunotkun vegna raforku til kyntra hitaveitna skal undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Raforkunotkun vegna hitunar íbúðarhúsnæðis sem uppfyllir skilyrði niðurgreiðslna skv. 4. gr. laga um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, skal einnig undanþegin greiðslu jöfnunargjalds. Við ákvörðun jöfnunargjalds vegna raforkutapa í dreifikerfi skal fjárhæð gjalds taka mið af hlutfallslegri skiptingu afhentrar raforku milli framangreindra flokka á viðkomandi veitusvæði. Við ákvörðun jöfnunargjalds samkvæmt þessari málsgrein skulu dreifitöp, sem ráðast af mismun móttekinna og afhentra raforkueininga samkvæmt uppgjöri skv. 5. mgr., bera jöfnunargjald samkvæmt sömu þrepaskiptingu og gildir um forgangsorku.

2. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 1,01 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,52 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 3. gr. a skal fjárhæð jöfnunargjalds vegna skerðanlegs flutnings raforku frá 1. júlí til 31. desember 2026 vera 0,34 kr. á hverja kílóvattstund fyrir samanlagða notkun hvers notanda á hverjum notkunarstað upp að 500 megavattstundum á því tímabili og 0,17 kr. á hverja kílóvattstund fyrir notkun sem er 500 megavattstundir eða meiri á því tímabili.

3. gr.

Lög þessi taka gildi 1. júlí 2026.

Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Jóhann Páll Jóhannsson.

A deild — Útgáfudagur: 30. júní 2026

Tengd mál