Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Málaflokkur
Skattar - gjöld - tollar
Undirritunardagur
22. desember 2017
Útgáfudagur
27. desember 2017
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1157/2017
22. desember 2017
AUGLÝSING
um fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt árið 2018.
Lögum samkvæmt ákveður og auglýsir fjármála- og efnahagsráðuneytið árlega fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns og innheimtuhlutfall í staðgreiðslu sem er samanlagt hlutfall tekjuskatts samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt og meðalhlutfall útsvars eins og það er samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna, sbr. lög nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga.
Tekjuskattshlutfall á árinu 2018 verður 22,5% af tekjuskattsstofni að 10.724.553 kr. og 31,8% af tekjuskattsstofni frá 10.724.554 kr. Meðalútsvar á árinu 2018 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 14,44%. Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu á árinu 2018 verður því 36,94% af tekjuskattsstofni að 10.724.553 kr. og 46,24% af tekjuskattsstofni frá 10.724.554 kr.
Samkvæmt A-lið 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, skal persónuafsláttur hvers einstaklings á árinu 2018 vera 646.739 krónur, eða 53.895 krónur að meðaltali á mánuði.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 22. desember 2017.
F. h. r.
Maríanna Jónasdóttir.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
B deild - Útgáfud.: 27. desember 2017