Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Umhverfisráðuneytið (2001-2012)

Málaflokkur

Skipulagsmál, Fjarðabyggð

Undirritunardagur

4. október 2010

Útgáfudagur

19. október 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 793/2010

4. október 2010

AUGLÝSING

um breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027, breytt lega Norðfjarðarvegar við Kirkjubólsveg.

Samkvæmt 19. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur ráðherra þann 4. október 2010 staðfest breytingu á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027 frá 24. ágúst 2010.
Breytingin felst í breyttri legu Norðfjarðarvegar frá Kirkjubólsvegi að Norðfjarðargöngum í Norðfirði á um 2,3 km kafla við Kirkjubólseyrar. Vegurinn mun fara norður fyrir hestaíþróttasvæðið við Kirkjubólseyrar og fylgja núverandi vegi inn fyrir tún á Kirkjubóli, þvera Norðfjarðará á móts við Hálshús og liggja þaðan að fyrri veglínu sunnan Norðfjarðarár. Gert er ráð fyrir göngum undir Norðfjarðarveg ofan við skeiðvöll fyrir hestamenn og útivistarfólk.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hefur málsmeðferð verið í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 og Skipulagsstofnun gert tillögu til ráðherra um staðfestingu.
Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfisráðuneytinu, 4. október 2010.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Íris Bjargmundsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 19. október 2010

Tengd mál