Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Málaflokkur

Félagsmál, Samningar, Sameinuðu þjóðirnar

Undirritunardagur

25. nóvember 2025

Útgáfudagur

2. desember 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 80/2025

25. nóvember 2025

LÖG

um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

Markmið laga þessara er að styrkja mannréttindi fatlaðs fólks og tryggja að fatlað fólk njóti til fulls allra mannréttinda og geti tekið virkan þátt í samfélaginu til jafns við aðra.

2. gr.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur lagagildi hér á landi. Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með lögum þessum.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört í Reykjavík, 25. nóvember 2025.

Halla Tómasdóttir.

(L. S.)

Inga Sæland.

A deild — Útgáfudagur: 2. desember 2025

Tengd mál