Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Ríkisskattstjóri

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar

Undirritunardagur

7. desember 2017

Útgáfudagur

27. desember 2017

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1161/2017

7. desember 2017

REGLUR

ríkisskattstjóra um skattmat vegna tekna af landbúnaði árið 2018.

Eftirfarandi reglur um skattmat tekna af landbúnaði á árinu 2018 eru settar skv. 118. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, sbr. og 2. tölul. B-liðar 17. gr. reglugerðar nr. 245/1963, um tekjuskatt og eignarskatt. Um er að ræða mat á tekjum í búrekstri, hvort sem um er að ræða einstaklingsrekstur eða rekstur lögaðila sem færa ber á rekstrarreikning fyrir tekjuárið 2018.

Búsafurðir til heimanota og önnur endurgjaldslaus afhending þeirra til eigenda, starfsmanna og skylduliðs þeirra skal telja til rekstrartekna. Tekur skattmatið m.a. til búfjárafurða, jarðargróða, afraksturs af hvers konar hlunnindum, afurða gróðurstöðva, fuglabúa o.s.frv. og sjávarafla og afla eldisstöðva. Séu afurðir, sem teknar eru eða afhentar til heimanota, ekki tilgreindar hér á eftir skal meta þær á sama verði og fyrir þær fæst við sölu til óskylds aðila. Séu afurðir þessar afhentar á lægra verði en í skattmatinu greinir skal mismunur á því verði og matsverðinu talinn til rekstrartekna hjá búinu. Sláturkostnaður vegna búsafurða til heimanota heimilast ekki til frádráttar rekstrartekjum.

Skattmat á heimaafnotum búsafurða o.fl. vegna tekjuársins 2018 er sem hér segir:

Tegund Krónur Eining
Mjólk 87 pr. lítra
Egg 505 pr. kg
Kartöflur 97 pr. kg
Rófur 134 pr. kg
Gulrætur 310 pr. kg
Lambakjöt 354 pr. kg
Kjöt af veturgömlu fé 156 pr. kg
Annað kjöt af sauðfé 102 pr. kg
Ungnautakjöt 833 pr. kg
Annað kjöt af nautgripum 464 pr. kg
Folaldakjöt 305 pr. kg
Annað kjöt af hrossum 95 pr. kg
Grísakjöt 425 pr. kg
Annað svínakjöt 218 pr. kg
Kjúklingar 362 pr. kg
Annað fuglakjöt 593 pr. kg
Lax og silungur 650 pr. kg
Annar fiskur 300 pr. kg

Reykjavík, 7. desember 2017.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2017

Tengd mál