Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Fjarskipti, Vegamál

Undirritunardagur

14. maí 2021

Útgáfudagur

31. maí 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 629/2021

14. maí 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 342/2013 um þróun upplýsinga- og fjarskiptatækni til notkunar fyrir skynvædd samgöngukerfi (ITS).

1. gr.

Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr f-liður, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1926 frá 31. maí 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu innan alls Evrópusambandsins.

2. gr.

Með reglugerð þessari er innleidd framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/1926 frá 31. maí 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/40/ESB að því er varðar veitingu fjölþátta ferðaupplýsingaþjónustu innan alls Evrópusambandsins, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 120 frá 2021 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 12. maí 2021, bls. 422.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 45. gr. vegalaga nr. 80/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. maí 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Jónas Birgir Jónasson.

B deild - Útgáfud.: 31. maí 2021

Tengd mál