Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Neytendastofa

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Textílvörur

Undirritunardagur

15. október 2010

Útgáfudagur

29. október 2010

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 829/2010

15. október 2010

AUGLÝSING

um breytingu á reglum nr. 295/2010 um heiti og merkingu textílvara.

1. gr.

Á eftir 1. gr. reglnanna bætist við ný grein, svohljóðandi, er verður 2. gr. og breytist töluröð annarra greina samkvæmt því:

Á grundvelli samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 82/2010 frá 2. júlí 2010 skal tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2009/121/EB um breytingu á I. og V. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/121/EB um textílheiti í því skyni að laga þá að tækniframförum öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af II. viðauka, bókun I og öðrum ákvæðum samningsins, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993, með áorðnum breytingum.

2. gr.

Við 2. gr. reglnanna, sem verður að 3. gr., bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar og EB-gerðin, sem vísað er til í 2. gr., eru birtar í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB. EB-gerðin er jafnframt birt sem fylgiskjal með reglum þessum.

3. gr.

Framangreindar breytingar, sem innleiða tilskipun 2009/121/EB og eru settar með heimild í 18. gr. laga nr. 57/2005, um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu, öðlast gildi við birtingu.

Neytendastofu, 15. október 2010.

Tryggvi Axelsson.

Hjördís Björk Hjaltadóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 29. október 2010

Tengd mál