Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

28. janúar 2026

Útgáfudagur

11. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 132/2026

28. janúar 2026

AUGLÝSING

um skipulagsmál í Hafnarfjarðarkaupstað.

Breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 1. áfanga, vegna Rauðhellu 13.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 var samþykkt á afgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. janúar 2026 breyting á deiliskipulagi Hellnahrauns, 1. áfanga, vegna Rauðhellu 13.

Breytingin felst í gerð viðbótarinnkeyrslu suðaustan megin við lóðina frá Hringhellu og í stækkun byggingarreits til suðurs um 2 m.

Málsmeðferð var skv. 2. mgr. 43. gr. ofangreindra laga.

Uppdráttur ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið þá meðferð sem ofangreind lög mæla fyrir um. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

Hafnarfirði, 28. janúar 2026.

F.h. umhverfis- og skipulagssviðs,

Anne Steinbrenner verkefnastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 11. febrúar 2026

Tengd mál