Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Árborg

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

12. mars 2026

Útgáfudagur

13. mars 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 250/2026

12. mars 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Árborg.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og samkvæmt viðauka við samþykkt um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar nr. 813/2018, sbr. breytingu á samþykktinni nr. 64/2025, sem kveða á um valdheimildir skipulagsfulltrúa til fullnaðarafgreiðslu, er eftirfarandi óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi samþykkt:

Fossnes og Mýrarland – óveruleg breyting á deiliskipulagi.

Skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti 11. mars 2026 óverulega breytingu á deiliskipulagi Fossness og Mýra, atvinnusvæðis á Selfossi. Breytingin nær til Breiðumýrar 5 og 8 og Huldumýrar 6, og felst í því að lóð 8 stækkar til austurs og lóðir 5 og 6 sameinast í eina lóð, með aðgengi frá Huldumýri. Deiliskipulagsmörk breytast til suðurs og fylgja lóðarmörkum eignarlands, sunnan við atvinnusvæðið.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Selfossi, 12. mars 2026.

F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,

Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 13. mars 2026

Tengd mál