Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dalabyggð
Málaflokkur
Brunamál, Dalasýsla
Undirritunardagur
17. desember 2015
Útgáfudagur
11. janúar 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1286/2015
17. desember 2015
GJALDSKRÁ
Slökkviliðs Dalabyggðar.
1. gr.
Verkefni Slökkviliðs Dalabyggðar (SD) ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 með síðari breytingum og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Af öðrum verkefnum skal SD taka gjald samkvæmt gjaldskrá þessari.
2. gr.
Af gjaldskyldum verkefnum skal SD taka gjald í samræmi við þann kostnað sem stofnunin verður fyrir vegna þeirra. Gjald skal ákvarðað á grundvelli vinnuframlags starfsmanna. Þegar um útkall er að ræða er að lágmarki innheimt fyrir fjóra tíma vegna hvers starfsmanns. Fast tímagjald fyrir klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 7.140 krónur og tekur mið af fjárhagsáætlun SD.
3. gr.
Af umsögnum til annarra opinberra stofnana vegna leyfisskyldrar starfsemi skal tekið fast gjald vegna þriggja klukkustunda vinnu ef skoða þarf viðkomandi stað, en einnar klukkustundar ef umsögn er afgreidd án skoðunar á staðnum.
4. gr.
Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum og/eða fellur að markmiðum SD. Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi.
5. gr.
Skrifstofa Dalabyggðar annast innheimtu gjalda f.h. SD samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi.
Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Vangreidd gjöld samkvæmt gjaldskránni skulu, þegar vægari innheimtuaðgerðir hafa ekki borið árangur, sótt fyrir dómstólum og í kjölfarið skal afla fjárnáms fyrir öllum skuldum skv. ofangreindu. Gjöldum sem til eru komin vegna eftirlits með því að farið hefur verið að kröfum um úrbætur á eldvörnum fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 2. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.
6. gr.
Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.
7. gr.
Innheimt gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari skulu renna til samfélags- og forvarnaverkefna á vegum SD.
8. gr.
Gjaldskrá þessi er unnin af slökkviliðsstjóra og samþykkt af sveitarstjórn Dalabyggðar, með heimild í sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 með síðari breytingum.
Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu.
Gjaldskráin tekur breytingum samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar hverju sinni.
Samþykkt á fundi sveitarstjórnar þann 15. desember 2015.
Búðardal, 17. desember 2015.
Sveinn Pálsson sveitarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 11. janúar 2016