Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

11. desember 2023

Útgáfudagur

27. desember 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1527/2023

11. desember 2023

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 153/2010 um takmörkun á inntöku nemenda í tilteknar námsgreinar við Háskóla Íslands.

1. gr.

Í stað tölunnar „40“ í 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglnanna kemur: 60.

2. gr.

2. málsl. 1. mgr. 2. gr. reglnanna fellur brott.

3. gr.

Fyrirsögn og texti núverandi 3. gr. reglnanna fellur niður og í staðinn orðast greinin svo:

  1. Fyrirsögn greinarinnar verður: Takmörkun á inntöku nemenda í námsgreinar stjórnmálafræðideildar.
  2. Greinin orðast svo:
    Fjöldi nýrra nemenda í BA-námi í blaðamennsku takmarkast við töluna 20.
    Ef umsækjendur sem uppfylla inntökuskilyrði eru fleiri en unnt er að taka inn, skal deildin taka mið af eftirfarandi atriðum:

    1. Einkunnum á stúdentsprófi (eða sambærilegu, sbr. inntökuskilyrði stjórnmálafræðideildar).
    2. Einkunnum í íslensku.
    3. Greinargerð umsækjenda.
    4. Viðtali.

4. gr.

Í stað tölunnar „60“ í 1. málsl. 1. mgr. 4. gr. reglnanna kemur: 75.

5. gr.

Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 5. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Starfræksla námsins á hverju námsári er háð því að 8 umsækjendur að lágmarki uppfylli skilyrði til þess að hefja nám.

6. gr.

Í stað orðsins „20“ í 1. málsl. 7. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: 10.

7. gr.

2. málsl. 7. mgr. 5. gr. reglnanna fellur brott.

8. gr.

Í stað tölunnar „12“ í 1. málsl. 10. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: 15.

9. gr.

Á eftir 1. málsl. 10. mgr. 5. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Starfræksla námsins á hverju námsári er háð því að 12 umsækjendur að lágmarki uppfylli skilyrði til þess að hefja nám.

10. gr.

Í stað tölunnar „13“ í 13. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: 17.

11. gr.

Í stað tölunnar „10“ í 13. mgr. 5. gr. reglnanna kemur: 15.

12. gr.

Á eftir 1. málsl. 13. mgr. 5. gr. reglnanna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Starfræksla diplómanáms í skurðhjúkrun og svæfingahjúkrun á hverju námsári er háð því að 10 umsækjendur að lágmarki uppfylli skilyrði til þess að hefja nám á hvoru kjörsviði fyrir sig.

13. gr.

Í stað tölunnar „18“ í 1. málsl. 1. mgr. 9. gr. b. í reglunum kemur: 15.

14. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fengnum tillögum fræðasviða, eru settar samkvæmt heimild í 3. og 4. mgr. 18. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 11. desember 2023.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 27. desember 2023

Tengd mál