Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

A deild

Stofnun

Forsætisráðuneytið

Málaflokkur

Alþingi

Undirritunardagur

20. júní 2026

Útgáfudagur

22. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 57/2026

20. júní 2026

AUGLÝSING

um frestun á fundum Alþingis.

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra hefur forseti Íslands gefið út svofellt bréf um frestun á fundum Alþingis:

„Forseti Íslands
gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frá 19. júní 2026 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 8. september 2026.

Gjört á Bessastöðum, 18. júní 2026.

Halla Tómasdóttir.
(L. S.)

Kristrún Frostadóttir.“

Alþingi samþykkti hinn 19. júní 2026 ályktun um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samkvæmt framangreindu umboði og með skírskotun til samþykkis Alþingis var fundum Alþingis, 157. löggjafarþings, frestað hinn 19. júní 2026.

Forsætisráðuneytinu, 20. júní 2026.

F. h. r.

Benedikt Árnason.

Hrefna Ragnhildur Jóhannesdóttir.

A deild — Útgáfudagur: 22. júní 2026

Tengd mál