Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.

Málaflokkur

Skipulagsmál, Rangárvallasýsla

Undirritunardagur

16. maí 2019

Útgáfudagur

17. maí 2019

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 459/2019

16. maí 2019

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Ásahreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag, Hellatún 1, landnr. 165286, íbúðar- og landbúnaðarlóðir.
Deiliskipulagið tekur til 10 íbúðar- og landbúnaðarlóða úr landi Hellatúns. Aðkoma að lóðunum er af Suðurlandsvegi, við Landvegamót og um Ásveg (nr. 275) og Laufásveg (nr. 2756). Skipulagssvæðið er alls um 33 ha að stærð. Í aðalskipulagi Ásahrepps 2010-2022 er svæðið skilgreint sem 5 íbúðarlóðir, Í6 og 5 landbúnaðarlóðir.
Samþykkt í sveitarstjórn 19. desember 2018.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 16. maí 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.

B deild - Útgáfud.: 17. maí 2019

Tengd mál