Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. júní 2022
Útgáfudagur
22. júní 2022
Leiðréttingar
24. júní 2022
HTML-texti og PDF-skjal: Texti 1. gr. verði: Í stað „9. gr.“ í lokamálsl. 4. gr. reglnanna komi: 11. gr.
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 738/2022
7. júní 2022
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 554/2011 um Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands.
1. gr.
Í stað orðanna „11. gr.“ í síðari málsl. 4. gr. reglnanna koma orðin: 9. gr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglnanna:
- Síðari málsl. 1. mgr. fellur brott.
- 2. mgr. fellur brott.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. reglnanna:
- 1. málsl. orðast svo: Aðild að stofnuninni með starfsaðstöðu eiga akademískir starfsmenn og aðjúnktar með rannsóknaskyldu við líf- og umhverfisvísindadeild svo og sérfræðingar með lengri ráðningartíma en eitt ár.
- 2. málsl. orðast svo: Stofnunin veitir framhaldsnemum við deildina og öðru tímabundið ráðnu starfsfólki við rannsóknir starfsaðstöðu.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. reglnanna:
- 2. málsl. orðast svo: Stjórn stofnunarinnar fjallar um öll sameiginleg málefni stofnunarinnar, ber ábyrgð á fjármálum hennar gagnvart forseta fræðasviðs, semur fjárhagsáætlun og gerir tillögu til forseta fræðasviðs um fjárveitingar.
- 5. málsl. orðast svo: Stjórnin skipar stofustjóra til þriggja ára samkvæmt tilnefningu stofufunda og skulu þeir vera fulltrúar hvorrar stofu í stjórn stofnunarinnar.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. reglnanna:
- 5. málsl. 1. mgr. fellur brott.
- Stafliður b í 2. mgr. fellur brott.
- Núverandi f-liður 2. mgr. fellur brott.
6. gr.
Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu líf- og umhverfisdeildar og stjórnar verkfræði- og náttúruvísindasviðs, öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. júní 2022.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 22. júní 2022