Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Utanríkisráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Utanríkismál, Alþjóðlegar þvingunaraðgerðir

Undirritunardagur

17. maí 2021

Útgáfudagur

2. júní 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 652/2021

17. maí 2021

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Sómalíu, nr. 792/2015, ásamt síðari breytingum.

1. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 2. gr. reglugerðarinnar, í réttri númeraröð:

1.14 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2018/1945 frá 10. desember 2018 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.14.
1.15 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2020/170 frá 6. febrúar 2020 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.15.
1.16 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/54 frá 22. janúar 2021 um breytingu á ákvörðun 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.16.
1.17 Framkvæmdarákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2021/560 frá 6. apríl 2021 um framkvæmd ákvörðunar 2010/231/SSUÖ um þvingunaraðgerðir gegn Sómalíu, fylgiskjal 1.17.
2.11 Reglugerð ráðsins (ESB) 2018/1933 frá 10. desember 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.11.
2.12 Framkvæmdarreglugerð ráðsins (ESB) 2021/559 frá 6. apríl 2021 um framkvæmd 12. gr. reglugerðar (ESB) nr. 356/2010 um að leggja á tilteknar, sérstakar þvingunaraðgerðir sem beint er að tilteknum einstaklingum eða lögaðilum, rekstrareiningum eða stofnunum í ljósi ástandsins í Sómalíu, fylgiskjal 2.12.
3.8 Reglugerð ráðsins (ESB) 2020/169 frá 6. febrúar 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.8.
3.9 Reglugerð ráðsins (ESB) 2021/48 frá 22. janúar 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 147/2003 um þvingunaraðgerðir að því er varðar Sómalíu, fylgiskjal 3.9.

2. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Listar yfir aðila, hluti, tækni eða annað viðfang þvingunaraðgerða, sem vísað er til í framangreindum gerðum, eru birtir á vef öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða Stjórnartíðinda Evrópusambandsins, eftir því sem við á. Síðari breytingar og uppfærslur listanna öðlast sjálfkrafa gildi við birtingu á þeim vefjum, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008.

2. gr. Gildístaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 4. og 12. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða nr. 93/2008, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 17. maí 2021.

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

B deild - Útgáfud.: 2. júní 2021

Tengd mál