Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Forsætisráðuneytið
Málaflokkur
Ríkisstjórn, Stjórnarráð Íslands
Undirritunardagur
12. desember 2025
Útgáfudagur
12. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 84/2025
12. desember 2025
FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra.
Forseti Íslands
gjörir kunnugt:
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftirfarandi breyting á forsetaúrskurði nr. 6/2025, um skiptingu starfa ráðherra:
1. gr.
Við bætist ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 9. gr. fer Eyjólfur Ármannsson með stjórnarmálefni sem heyra undir mennta- og barnamálaráðuneytið og ber embættisheitið mennta- og barnamálaráðherra, um stundarsakir, meðan fjarvera Guðmundar Inga Kristinssonar, vegna veikinda, varir.
2. gr.
Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 12. desember 2025.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Kristrún Frostadóttir.
A deild — Útgáfudagur: 12. desember 2025