Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Hafnarfjörður, Hafnamál

Undirritunardagur

23. júní 2026

Útgáfudagur

8. júlí 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 781/2026

23. júní 2026

HAFNARREGLUGERÐ

um breytingu á hafnarreglugerð nr. 423/2012 fyrir Hafnarfjarðarhöfn.

1. gr. Stærð og takmörk hafnarinnar.

1. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Hafnarsvæði.

Skilgreint starfssvæði Hafnarfjarðarhafnar skiptist í: Skipulagssvæði, hafnsögusvæði, þjónustusvæði, hafnsvæði farþegaskipa og innri höfn.

Hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar er fyrir allri strandlengju lögsagnarumdæmis Hafnarfjarðar. Lega og hnitpunktar hafnarsvæðanna eru sýnd á korti sem birt er sem fylgiskjal með reglugerð þessari og er hluti hennar.

Takmörk á sjó eru:

Ystu mörk þjónustu- og hafnsögusvæðis.

Takmörk á landi í Hafnarfirði eru:

Frá Rauðsnefi á norðurströnd hafnarinnar, Herjólfsgata, Norðurbakki, Fjarðargata, Strandgata sunnan Lækjargötu, Fornubúðir, Óseyrarbraut, Lónsbraut í línu við norðurenda Hvaleyrargranda í landfyllingu sunnan við Óseyrarbraut 21 og eftir strandlengju að norðurenda Hvaleyrargarðs.

Takmörk á landi í Straumsvík eru:

Fjaran á vesturströndinni og að auki allt landsvæði frá miðjum botni Straumsvíkur og Reykjanesbraut á austurströndinni sjávar megin við Víkurbraut út að vesturenda Súrálsbakka. Þaðan í hánorður út fyrir ystu sker Lambhagagranda og með landfyllingum í austur að Þórðarvík og öll strandlengjan þar á milli.

  1. Skipulagssvæði á sjó og mengunarlögsaga nær að netlögum, sjávarbelti 115 m út frá stórstraumsfjöruborði.
  2. Hafnsögusvæði og þjónustusvæði:
    Hafsvæði innan við línu úr Mararkletti í Gróttuvita og lína úr Balaklöpp til skurðar við áðurnefnda línu, 5.000 m frá meðalstórstraumsfjöru á Hraunsnesi.
    Hnitakerfi WGS84:
    64°02,48‘N – 22°07,75‘V
    64°04,88‘N – 22°05,61‘V
    64°04,69‘N – 21°59,00‘V 
  3. Hafnarsvæði farþegaskipa:
    Innan línu sem dregin er frá Hvaleyrarhöfða í Helgasker og þaðan í Balaklöpp.
    Hnitakerfi WGS84:
    64°03,807‘N – 21°59,30‘V
    64°04,25‘N – 22°00,87‘V
    64°04,69‘N – 21°59,00‘V
  4. Innri höfn, Hafnarfirði:
    Innan línu sem er dregin frá Hvaleyrargarði í Balaklöpp á norðurströnd hafnarinnar.
    Hnitakerfi WGS84:
    64°04,21‘N – 21°58,99‘V
    64°04,69‘N – 21°59,00‘V

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga, nr. 61/2003, og 17. gr. laga um vaktstöð siglinga, nr. 41/2003, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Innviðaráðuneytinu, 23. júní 2026.

F. h. r.

Árni Freyr Stefánsson.

Katrín Pálsdóttir.

B deild — Útgáfudagur: 8. júlí 2026

Tengd mál