Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Ökutæki
Undirritunardagur
20. október 2021
Útgáfudagur
3. nóvember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1232/2021
20. október 2021
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um stærð og þyngd ökutækja, nr. 155/2007, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 1. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður sem verður svohljóðandi:
Ákvörðun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/984 frá 5. júní 2019 um breytingu á tilskipun ráðsins 96/53/EB að því er varðar frest til að framkvæma sérstakar reglur um hámarkslengd stýrishúsa sem fela í sér bætta loftnúningsviðnámsgetu, meiri orkunýtni og meira öryggi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 218/2020 frá 11. desember 2020, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 49, 22. júlí 2021, bls. 35-36.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 82. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. október 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Ástríður Scheving Thorsteinsson.
B deild - Útgáfud.: 3. nóvember 2021