Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
15. janúar 2024
Útgáfudagur
30. janúar 2024
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 95/2024
15. janúar 2024
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 94. gr. reglnanna:
-
Á
eftir
2.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Til BS-prófs er krafist 180 eininga en til meistaraprófs ýmist 90 eða 120 eininga. Nánari reglur um MS- og MA-nám en fram koma í þessum kafla skulu staðfestar af háskólaráði, sbr. ákvæði 66. og 69. gr. þessara reglna. Deildin setur nánari reglur um inntökuskilyrði, námsleiðir og námskröfur. - 4. og 8. mgr. falla brott.
2. gr.
Í stað orðsins „iðnmeistara“ í 15. mgr. 117. gr. reglnanna kemur orðið: starfsmenntakennara.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 121. gr. reglnanna:
- Orðin „menntastefnur og matsfræði; starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf; stjórnun menntastofnana“ í c-lið 1. mgr. falla brott.
- Núverandi d-liður 1. mgr. fellur brott.
- Núverandi e-liður 1. mgr. verður d-liður.
- Í stað orðsins „þrjár“ í 3. mgr. kemur orðið: tvær.
- Orðin „námsbraut í menntastjórnun og matsfræði“ í 3. mgr. falla brott.
- Núverandi 16. mgr. fellur brott.
- Núverandi 17. mgr. fellur brott.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 122. gr. reglnanna:
- Við upptalningu kennslugreina til MA-prófs í c-lið 1. mgr. bætist orðið: matsfræði.
- Við upptalningu kennslugreina til M.Ed.-prófs í d-lið 1. mgr. bætast orðin: menntastefnur og matsfræði; starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf; stjórnun menntastofnana.
- Í stað orðsins „þrjár“ í 3. mgr. kemur orðið: fjórar.
- Við upptalningu námsbrauta í 3. mgr. bætast við orðin: námsbraut í menntastjórnun og matsfræði.
-
Á
eftir
22.
mgr.
bætast
við
tvær
nýjar
málsgreinar,
svohljóðandi:
Diplómanám í kennslufræði háskóla er sjálfstætt 30 eininga nám á meistarastigi.
Diplómanám í menntastjórnun og matsfræði er sjálfstætt 30 eininga eða 60 eininga nám á meistarastigi.
5. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast gildi 1. júlí 2024.
Háskóla Íslands, 15. janúar 2024.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 30. janúar 2024