Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar
Málaflokkur
Skipulagsmál, Reykjavík
Undirritunardagur
23. janúar 2026
Útgáfudagur
6. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 118/2026
23. janúar 2026
AUGLÝSING
um breytingar á deiliskipulagi í Reykjavíkurborg.
Slippa- og Ellingsenreitur - Geirsgata 3-7 - USK25020209.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 13. janúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits vegna lóðarinnar nr. 3-7 við Geirsgötu. Í breytingunni felst afmörkun lóðar fyrir djúpgáma og breyting á frágangi útisvæða með aðgengi að byggingum við Geirsgötu 3-7 með áherslum á aðgengi fyrir alla. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Ártúnshöfði - svæði 1 - Stálhöfði 2 - USK25070055.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 13. janúar 2026, breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða, svæðis 1, vegna lóðarinnar nr. 2 við Stálhöfða. Í breytingunni felst að heimilt verði að stækka neðri bílakjallara til að fjölga bílastæðum um 17 og verða bílastæðin 102 eftir breytinguna. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. og 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 23. janúar 2026.
Brynjar Þór Jónasson.
B deild — Útgáfudagur: 6. febrúar 2026