Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Húnabyggð

Málaflokkur

Sorphreinsun, Húnavatnssýslur

Undirritunardagur

10. desember 2024

Útgáfudagur

21. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1802/2024

10. desember 2024

GJALDSKRÁ

fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Húnabyggð.

1. gr.

Árlegt sorphirðugjald, vegna sorphirðu, sorpeyðingar og afnota af gámasvæði í Húnabyggð er sem hér segir:

1.1 Á hverja íbúð og á lögbýli eða íbúðarhús sem hirt er á 21 dags fresti:
Sorphirðugjald 41.740 kr.
Sorpförgunargjald 41.740 kr.
Samtals 83.480 kr.
Þar sem eru stærri tunnur en 240 lítra þá eru gjöldin eftirfarandi:
240 lítra tunna 83.480 kr.
660 lítra tunna 166.960 kr.
1.100 lítra tunna 262.550 kr.
Gjald samkvæmt þessum lið miðast við að sorp sé hirt úr einu 240 lítra sorpíláti fyrir almennt sorp og einu 240 lítra sorpíláti fyrir pappír á hvern greiðanda. Óski greiðendur eftir fleiri sorpílátum skal greiða 37.200 kr. fyrir hvert viðbótar 240 lítra sorpílát.
1.2 Fyrir sumarhús, 32.590 kr. sorpförgunargjald, enda geti notendur þeirra losað sig við sorp á gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um.
1.3 Fyrir hesthús og gripahús í þéttbýli, 32.590 kr. á hús, enda geta eigendur notað gámasvæði sveitarfélagsins samkvæmt gildandi reglum þar um.
Fyrir hverja heimsókn á lögbýli til að sækja heyrúlluplast til förgunar eru greiddar 10.000 kr. auk virðisaukaskatts.

2. gr.

Gjald fyrir sorphirðu og sorpeyðingu skv. 1. gr. skal innheimta með fasteignagjöldum.

3. gr.

Að lokinni álagningu gjalda skv. 1. gr. gefst greiðendum 30 daga frestur til að gera athugasemdir við gjaldtöku sveitarstjórnar. Ósk um breytingu gjalda skal vera skrifleg og vel rökstudd og er sveitarstjórn heimilt að breyta gjaldtöku með tilliti til réttmætis framsettra athugasemda.

4. gr.

Gjaldskrá endurvinnslustöðvar er sem hér segir og þarf úrgangsflokkur að vera staðfestur af starfsmanni á gámastöð.

Afgreiðslugjald á gjaldskyldum flokkum er að lágmarki 2.160 kr. með vsk. Þeir sem koma með úrgang á gámastæðið að Efstubraut 5a, Blönduósi, greiða eftir rúmmáli fyrir losun á úrgangi í eftirtöldum flokkum:

Stærð farms: 0,25 m³ 0,50 m³ 0,75 m³ 1 m³
Gjald 2.160 kr. 4.310 kr. 6.470 kr. 8.620 kr.

Stærri farmar eftir magni að 5 m³ er reiknað út frá 1 m³ gjaldi. Þegar um stærri farma er að ræða (5-10 m³) þarf að semja sérstaklega um móttöku þeirra.

Gjaldskylt frá heimilum Gjaldskylt frá rekstraraðilum
Vörubretti, kassar o.þ.h.
Timbur – þar með talið ljós-/hvítmálað eða plasthúðað frá framkvæmdum
Húsgögn o.þ.h. Nei
Grófur úrgangur frá framkvæmdum
Bólstruð húsgögn, dýnur o.þ.h. Nei
Blandaður úrgangur frá framkvæmdum
Blandaður heimilisúrgangur o.þ.h. Nei
Steinefni frá framkvæmdum
Bílrúður
Jarðvegur
Gras og hey Nei
Trjágreinar
Garðaúrgangur Nei
Brotajárn Nei

Flokkaður úrgangur sem fer til endurvinnslu er án gjalds fyrir alla. Flokkaður úrgangur skal vera án aðskotahluta eða mengandi efna í samræmi við reglur um flokkun og móttöku úrgangs.

5. gr.

Gjaldskrá þessi er samin og samþykkt af sveitarstjórn Húnabyggðar á grundvelli samþykktar um meðhöndlun úrgangs í Húnabyggð og 59. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998 og öðlast þegar gildi. Um leið fellur úr gildi gjaldskrá fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Húnabyggð, nr. 1710/2023.

Blönduósi, 10. desember 2024.

Pétur Arason sveitarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 21. janúar 2025

Tengd mál