Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Félagsmálaráðuneytið (2019-2021)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Vinnuvernd
Undirritunardagur
29. maí 2020
Útgáfudagur
29. maí 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 531/2020
29. maí 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 390/2009, um mengunarmörk og aðgerðir til að draga úr mengun á vinnustöðum, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka I við reglugerðina:
- Eftirfarandi breytingar verða á mengunarmarkaskrá:
| EB-nr. | CAS-nr. | Efni | Mengunarmörk | Ath. | Nr. | |||
| Fyrir 8 tíma | Þakgildi | |||||||
| ppm | mg/m³ | ppm | mg/m³ | |||||
| 209-800-6 | 593-60-2 | Brómetýlen | 1 | 4,4 | - | - | K | |
| 203-450-8 | 106-99-0 | 1,3 Bútandíen | 1 | 2,2 | - | - | K | |
| 200-879-2 | 75-56-9 | 1,2 Etoxýprópan | 1 | 2,4 | - | - | H, K | |
| 206-114-9 | 302-01-2 | Hydrasín | 0,01 | 0,013 | - | - | H, K | |
| 202-429-0 | 95-53-4 | o-Toluidín | 0,1 | 0,5 | - | - | H, K | |
| 239-487-1 | 15468-32-3 |
Trídýmit Heildarryk Örfínt ryk |
- - |
0,15 0,05 |
- - |
- - |
K | |
| 231-801-5 | 7738-94-5 | Krómsýra og krómöt (Sexgilt króm, Cr (VI)), sem Cr, fyrir utan strontíumkrómat | - | 0,005 | - | - | O, K | 33) |
| Keramikþræðir | - | 0,3 | - | - | K | 3), 34) | ||
| 238-878-4 | 14464-46-1 |
Kristóbalít Heildarryk Örfínt ryk |
- - |
0,15 0,05 |
- - |
- - |
K | |
| 238-455-4 | 14808-60-7 |
Kvars Heildarryk Örfínt ryk |
- - |
0,3 0,1 |
- - |
- - |
K | |
-
Á eftir 32. tölul. í lista yfir athugasemdir við mengunarmarkaskrá og samantekt á efnum sem hafa mengunarmörk fyrir örfínt ryk og þræði koma tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Mengunarmörk 0,010 mg/m³ gilda til 17. janúar 2025. Þrátt fyrir framangreint gilda mengunarmörk 0,025 mg/m³ við rafsuðu, plasmaskurð eða sambærilega vinnu sem myndar gufur til 17. janúar 2025.
- Þræðir í rúmmetra (m³).
2. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi sem sett er samkvæmt heimild í 38. og 3. mgr. 51. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, með síðari breytingum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins og umhverfis- og auðlindaráðuneytis, til innleiðingar á tilskipun 2017/2398/ESB frá 12. desember 2017, um breytingu á tilskipun ráðsins 2004/37/EB, um verndun starfsmanna gegn áhættu vegna áhrifa af krabbameinsvöldum eða stökkbreytivöldum á vinnustað, sem vísað er til í XVIII. viðauka samnings um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 129/2009, öðlast þegar gildi.
Félagsmálaráðuneytinu, 29. maí 2020.
Ásmundur Einar Daðason.
Bjarnheiður Gautadóttir.
B deild - Útgáfud.: 29. maí 2020