Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Innanríkisráðuneytið (2011-2017)
Málaflokkur
Refsilög, Hegningarlög
Undirritunardagur
30. mars 2016
Útgáfudagur
4. apríl 2016
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 23/2016
30. mars 2016
LÖG
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi).
HANDHAFAR
VALDS
FORSETA
ÍSLANDS
samkvæmt
8.
gr.
stjórnarskrárinnar
forsætisráðherra,
forseti
Alþingis
og
forseti
Hæstaréttar,
gjöra
kunnugt:
Alþingi
hefur
fallist
á
lög
þessi
og
vér
staðfest
þau
með
samþykki
voru:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 5. gr. laganna:
- Í stað „2.–4. mgr. 206. gr., 1. mgr. 210. gr. b, 218. gr. a“ í 1. málsl. kemur: 194. gr., 2.–4. mgr. 206. gr., 1. mgr. 210. gr. b, 2. mgr. 216. gr., 218. gr. a, 2. mgr. 225. gr.
- Orðin „194. gr.“ og „200.–201. gr.“ í 2. málsl. falla brott.
2. gr.
Við 6. gr. laganna bætist nýr töluliður svohljóðandi: Fyrir háttsemi sem greinir í samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi frá 11. maí 2011.
3. gr.
Í stað „218. gr. a“ í 2. málsl. 1. mgr. 82. gr. laganna kemur: 2. mgr. 216. gr., 218. gr. a, 218. gr. b, 2. mgr. 225. gr.
4. gr.
Á eftir 218. gr. a laganna kemur ný grein, 218. gr. b, svohljóðandi, og breytist númer næstu greinar samkvæmt því:
Hver
sem
endurtekið
eða
á
alvarlegan
hátt
ógnar
lífi,
heilsu
eða
velferð
núverandi
eða
fyrrverandi
maka
síns
eða
sambúðaraðila,
niðja
síns
eða
niðja
núverandi
eða
fyrrverandi
maka
síns
eða
sambúðaraðila,
áa
síns,
eða
annarra
sem
búa
með
honum
á
heimili
eða
eru
í
hans
umsjá,
með
ofbeldi,
hótunum,
frelsissviptingu,
nauðung
eða
á
annan
hátt,
skal
sæta
fangelsi
allt
að
6
árum.
Ef
brot
er
stórfellt
getur
það
varðað
fangelsi
allt
að
16
árum.
Við
mat
á
grófleika
verknaðar
skal
sérstaklega
líta
til
þess
hvort
þolandi
hafi
beðið
stórfellt
líkams-
eða
heilsutjón
eða
bani
hlotist
af.
Enn
fremur
ber
að
líta
til
þess
hvort
brot
hafi
verið
framið
á
sérstaklega
sársaukafullan
eða
meiðandi
hátt,
hafi
staðið
yfir
í
langan
tíma
eða
hvort
gerandi
hafi
misnotað
freklega
yfirburðastöðu
sína
gagnvart
þolanda.
5. gr.
Við 225. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Ef maður neyðir annan mann til að ganga í hjúskap, þá varðar það fangelsi allt að 4 árum. Sömu refsingu varðar að neyða annan mann til að gangast undir sambærilega vígslu þó að hún hafi ekki gildi að lögum.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
7. gr. Breytingar á öðrum lögum.
-
Við
gildistöku
laga
þessara
bætast
tvær
nýjar
málsgreinar
við
31.
gr.
laga
um
ráðgjöf
og
fræðslu
varðandi
kynlíf
og
barneignir
og
um
fóstureyðingar
og
ófrjósemisaðgerðir,
nr.
25/1975,
með
síðari
breytingum,
svohljóðandi:
Beinist brot samkvæmt þessari grein að barni undir 18 ára aldri telst fyrningarfrestur eigi fyrr en frá þeim degi er þolandi nær þeim aldri. Að öðru leyti fer um fyrningu eftir IX. kafla almennra hegningarlaga.
Refsað skal eftir þessari grein fyrir brot manns, sem var íslenskur ríkisborgari eða búsettur hér á landi á verknaðarstundu, sem framið er erlendis þrátt fyrir að verknaðurinn teljist ekki refsiverður eftir lögum þess ríkis. - Við gildistöku laga þessara verður eftirfarandi breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, með síðari breytingum: Á eftir tilvísuninni „1. mgr. 218. gr.“ í h-lið 1. mgr. 23. gr. laganna kemur: 218. gr. b.
Gjört í Reykjavík, 30. mars 2016.
| Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. | Einar K. Guðfinnsson. | Markús Sigurbjörnsson. |
| (L. S.) |
Ólöf Nordal.
A deild - Útgáfud.: 4. apríl 2016