Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskólinn á Hólum

Málaflokkur

Skattar - gjöld - tollar, Háskólar

Undirritunardagur

7. júní 2021

Útgáfudagur

30. júlí 2021

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 898/2021

7. júní 2021

REGLUR

Háskólans á Hólum um gjaldskrá vegna þjónustu við nemendur og innheimtu og ráðstöfun innritunargjalda.

1. gr. Almennt.

Samkvæmt 24. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla er Háskólanum á Hólum heimilt að afla sér tekna til viðbótar við framlög á fjárlögum. Háskólaráð skólans hefur sett nánari reglur um gjaldtöku og ráðstöfun gjalda sem hér segir.

2. gr. Innritunargjald.

Innritunargjald við Háskólann á Hólum er 75.000 kr.

Innheimtuseðill fyrir innritunargjald birtist umsækjendum í netbanka þeirra í júní eða þegar umsókn hefur verið samþykkt. Hjá eldri nemendum sem halda áfram námi birtist hann einnig í júní. Eindagi innritunargjalda er 10. júlí. Með greiðslu innritunargjalda staðfestir umsækjandi skólavist við Háskólann á Hólum. Óski umsækjandi að greiða skrásetningargjald eftir eindaga, reiknast 15% álag á gjaldið. Einstaklingar með örorkumat að lágmarki 75%, geta sótt um afslátt á innritunargjaldi, að hámarki 50% af gjaldinu.

Gestanemendur frá opinberum háskólum á Íslandi eru undanþegnir greiðslu innritunargjalds gegn staðfestingu á greiðslu gjalds við móðurskóla.

Innritunargjald er óafturkræft.

Innritunargjald er bókfært hjá yfirstjórn háskólans í samræmi við fjárlög. Háskólaráð ráðstafar innritunarargjaldi á þá kostnaðarliði, sem falla undir gjaldskrá lögum samkvæmt.

3. gr.

Gjöld fyrir útgáfu vottorða, fyrirlögn og yfirferð stöðu-, inntöku-, upptöku- og fjarprófa.

Afrit skírteina:
Afrit brautskráningarskírteinis 350 kr.
Námsferilsyfirlit 350 kr.
Vottorð 350 kr.
Staðfesting á skírteini 350 kr.
Afrit af gögnum eldri en frá árinu 2007 5.000 kr.
Próftökugjald:
Endurtökupróf 6.000 kr.
Verklegt endurtökupróf á hesti 10.000 kr.
Verknámsgjald:
Verknámsgjald fiskeldis, innanlands 50.000 kr.
Verknámsgjald fiskeldis, erlendis 180.000 kr.

Við brautskráningu fá nemendur afhent brautskráningarskírteini, brautskráningaryfirlit á íslensku og ensku, og skírteinisviðauka á ensku, endurgjaldslaust.

Verknámsgjald miðast við að það standi straum af ferðakostnaði umsjónarmanns námskeiðsins.

4. gr. Gjöld fyrir aðra þjónustu sem háskólinn innheimtir sérstaklega fyrir.

Þjónusta fyrir nemendahesta, hestafræðideild:
Nemendahestur – mánaðargjald 1 17.500 kr.
Námsráðgjöf:
Hugræn atferlismeðferð 2 6.000 kr.
Þjónustugjöld 3:
Útprentun, blaðsíða í svarthvítu 25 kr.
Útprentun, blaðsíða í lit 50 kr.
Ljósrit 25 kr.
Ljósrit, báðum megin 30 kr.
Ljósrit, á löggiltan skjalapappír 125 kr.
Plöstun 80 kr.
Gormur og glæra 250 kr.
Símbréf/fax 70 kr.

1 Nemendur greiða kostnaðarverð fyrir fóður og undirburð fyrir eigin hesta í hesthúsinu á Hólum.
2 Háskólinn býður nemendum upp á sértæk námskeið tengd námsráðgjöf í hugrænni atferlismeðferð. Greiðsla er staðfestingargjald fyrir þátttöku í námskeiðinu.
3 Nemendur greiða fyrir áætlaðan efnis- og rekstrarkostnað af þjónustu við prentun og ljósritun.

5. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglur þessar eru settar með stoð í 24. gr laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, og taka þegar gildi.

Háskólanum á Hólum, 7. júní 2021.

Erla Björk Örnólfsdóttir rektor.

B deild - Útgáfud.: 30. júlí 2021

Tengd mál