Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Skipulagsstofnun
Málaflokkur
Skipulagsmál, Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla
Undirritunardagur
29. apríl 2021
Útgáfudagur
3. maí 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 481/2021
29. apríl 2021
AUGLÝSING
um aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar 2019-2039.
Skipulagsstofnun staðfesti 29. apríl 2021 aðalskipulag Grundarfjarðarbæjar og skrá yfir vegi í náttúru Íslands, sem samþykkt var í sveitarstjórn 8. október 2020. Við gildistöku aðalskipulagsins fellur úr gildi aðalskipulag Grundarfjarðar 2003-2015 ásamt síðari breytingum.
Málsmeðferð var samkvæmt 30.-32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsstofnun, 29. apríl 2021.
F.h. forstjóra,
Ólafur Árnason.
B deild - Útgáfud.: 3. maí 2021