Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
30. ágúst 2019
Útgáfudagur
13. september 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 813/2019
30. ágúst 2019
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr tölul., 32, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1866 frá 28. nóvember 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1866 frá 28. nóvember 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 90/2019 frá 29. mars 2019. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 20. júní 2019, bls. 61-79.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. ágúst 2019.
F. h. r. Sigurbergur Björnsson.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
B deild - Útgáfud.: 13. september 2019