Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Innviðaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Flutningar, Samgöngumál, Fólksflutningar

Undirritunardagur

16. maí 2023

Útgáfudagur

1. júní 2023

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 529/2023

16. maí 2023

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð nr. 474/2017, um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Við 20. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, s-liður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/694 frá 2. maí 2022 um breytingu á reglugerð (ESB) 2016/403 að því er varðar ný, alvarleg brot á reglum Sambandsins sem geta leitt til þess að óflekkað mannorð flutningsaðila á vegum skaðast. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 9. mars 2023, bls. 426-436.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 2. mgr. 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 28/2017, öðlast þegar gildi.

Innviðaráðuneytinu, 16. maí 2023.

F. h. r.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Marta Mirjam Kristinsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 1. júní 2023

Tengd mál