Upplýsingar um auglýsingu
Deild
A deild
Stofnun
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Málaflokkur
Orkumál, Náttúrurannsóknir - náttúruvernd
Undirritunardagur
28. júní 2026
Útgáfudagur
6. júlí 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 66/2026
28. júní 2026
LÖG
um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (vindorka og verndarflokkur).
Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
- Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
Um virkjunarhugmyndir til nýtingar vindorku fer skv. 10. gr. a. - Við 2. mgr. bætist ný orðskýring í viðeigandi stafrófsröð, svohljóðandi: Vindorka: Nýting vinds til vinnslu á orku.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. mgr. 3. gr. laganna:
- Á eftir 1. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Að auki tekur áætlunin til landsvæða og virkjunarhugmynda í vindorku sem hafa uppsett rafafl 10 MW eða meira eða vindorkumannvirki í hæstu stöðu er hærra en 30 metrar.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þegar um er að ræða landsvæði og virkjunarhugmyndir í vindorku tekur verndar- og orkunýtingaráætlun að auki ekki til svæða á B-hluta náttúruminjaskrár, Ramsar-svæða, svæða á heimsminjaskrá UNESCO auk svæða sem tilnefnd hafa verið á skrána.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
- Orðin „gagnvart orkuvinnslu“ í 1. mgr. og 1. málsl. 3. mgr. falla brott.
- 5. mgr. orðast svo:
Eftir að Alþingi hefur samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlun skal Náttúruverndarstofnun hefja undirbúning að friðlýsingu svæða í verndarflokki áætlunarinnar skv. 2. mgr. 38. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013. Friðlýsing skal byggjast á verndarmarkmiðum 2. og 3. gr. sömu laga og skal stofnunin hafa samráð við Náttúrufræðistofnun við framkvæmd hennar. Varði friðlýsing menningarsögulegar minjar fer um hana samkvæmt lögum um menningarminjar. - Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Hafi ekki náðst samkomulag við landeiganda og viðkomandi sveitarfélag um friðlýsingu viðeigandi hluta svæðisins á grundvelli 45.–52. gr. laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, innan fimm ára frá því að svæðið var samþykkt í verndarflokk áætlunarinnar skal ráðherra friðlýsa svæðið á grundvelli 53. gr. laganna. Ráðherra getur framlengt þennan frest um tvö ár ef hann telur það nauðsynlegt til að ná samkomulagi.
4. gr.
Á eftir tilvísuninni „5.“ í 3. málsl. 3. mgr. 9. gr. laganna kemur: eða 6.
5. gr.
Á eftir 10. gr. laganna kemur ný grein, 10. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Sérstök sjónarmið við mat virkjunarhugmynda til nýtingar á vindorku.
Auk þeirra sjónarmiða sem greinir í 4. mgr. 3. gr. skal verkefnisstjórn horfa sérstaklega til eftirfarandi þátta:
- hvort viðkomandi sveitarfélag hafi lýst yfir formlegri afstöðu til virkjunarhugmyndar og hvaða sjónarmið liggi til grundvallar; jafnframt skal litið til umsagna nálægra sveitarfélaga hafi virkjunarhugmynd áhrif á hagsmuni þeirra,
- hvort virkjunarhugmynd sé til þess fallin að efla raforkuöryggi og falli að gildandi þingsályktun um stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku og sé nærri tengivirkjum og flutningslínum,
- hvaða áhrif virkjunarhugmynd hefði á atvinnu- og byggðaþróun, einkum á svæðum sem standa frammi fyrir áskorunum í byggðamálum samkvæmt gildandi stefnumótandi byggðaáætlun,
- hvort virkjunarhugmynd sé innan marka miðhálendislínu samkvæmt gildandi landsskipulagsstefnu, en innan hennar skal sérstaklega litið til þess hvort slíku svæði hafi þegar verið raskað vegna orkuvinnslu eða uppbyggingar flutningskerfis raforku,
- hvort virkjunarhugmynd sé að öðru leyti á röskuðu svæði, þ.e. svæði þar sem landnotkun eða mannleg umsvif hafa breytt landi frá upprunalegu og náttúrulegu ástandi þess,
- hvort virkjunarhugmynd hafi áhrif á alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði, farleiðir fugla og búsvæði, íbúa nærumhverfis, óbyggð víðerni og ásýnd lands og landslags.
Um meðferð virkjunarhugmynda til nýtingar vindorku fer að öðru leyti eftir almennum ákvæðum laga þessara.
6. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Gjört á Bessastöðum, 28. júní 2026.
Halla Tómasdóttir.
(L. S.)
Jóhann Páll Jóhannsson.
A deild — Útgáfudagur: 6. júlí 2026