Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Dómsmálaráðuneytið

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Útlendingar

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

11. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 669/2026

11. júní 2026

REGLUGERÐ

um breytingu á reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017.

1. gr.

Ákvæði 41. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

2. gr.

Í stað orðsins „Dyflinnarsamstarfsins“ í fyrirsögn 47. gr. reglugerðarinnar og í 1. og 2. mgr. sama ákvæðis kemur: AMMR-samstarfsins.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 4. mgr. 36. gr. og 41. tölul. 2. mgr. 120. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, öðlast þegar gildi. Þó öðlast ákvæði 2. gr. ekki gildi fyrr en 1. júlí 2026.

Dómsmálaráðuneytinu, 11. júní 2026.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Páll Winkel.

B deild — Útgáfudagur: 11. júní 2026

Tengd mál