Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
4. febrúar 2026
Útgáfudagur
5. febrúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 111/2026
4. febrúar 2026
REGLUGERÐ
um stjórnun upplýsingaverndaráhættu með möguleg áhrif á flugöryggi.
1. gr. Markmið.
Markmið reglugerðar þessarar er að setja samræmdar kröfur um stjórnun upplýsingaverndaráhættu með möguleg áhrif á flugöryggi.
2. gr. Lögbært stjórnvald og framkvæmd.
Samgöngustofa er lögbært stjórnvald samkvæmt reglugerð þessari og sér um framkvæmd hennar.
3. gr. Innleiðing.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtaldar reglugerðir framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:
- Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1645 frá 14. júlí 2022 um reglur um beitingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar kröfur um stjórnun upplýsingaverndaráhættu með möguleg áhrif á flugöryggi fyrir fyrirtæki sem fjallað er um í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 748/2012 og (ESB) nr. 139/2014 og um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar nr. 748/2012 og (ESB) nr. 139/2014, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 361-374.
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/203 frá 27. október 2022 um reglur vegna beitingar reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1139 að því er varðar kröfur um stjórnun upplýsingaverndaráhættu með möguleg áhrif á flugöryggi fyrir fyrirtæki sem fjallað er um í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1321/2014, (ESB) nr. 965/2012, (ESB) nr. 1178/2011, (ESB) 2015/340, framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/373 og (ESB) 2021/664, og fyrir lögbær yfirvöld sem fjallað er um í reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 748/2012, (ESB) nr. 1321/2014, (ESB) nr. 965/2012, (ESB) nr. 1178/2011, (ESB) 2015/340 og (ESB) nr. 139/2014, framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/373 og (ESB) 2021/664, og um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1178/2011, (ESB) nr. 748/2012, (ESB) nr. 965/2012, (ESB) nr. 139/2014, (ESB) nr. 1321/2014, (ESB) 2015/340, og framkvæmdarreglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/373 og (ESB) 2021/664, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 146/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins, nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 375-414.
4. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, er sett með heimild í 20. gr., 72. gr., 83. gr., 93. gr., 152. gr. og 188. gr. laga um loftferðir, nr. 80/2022, og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 4. febrúar 2026.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 5. febrúar 2026