Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hafnarfjarðarkaupstaður
Málaflokkur
Félagsmál, Hafnarfjörður
Undirritunardagur
18. nóvember 2025
Útgáfudagur
2. desember 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1292/2025
18. nóvember 2025
REGLUR
Hafnarfjarðarkaupstaðar um stuðningsfjölskyldur.
I. KAFLIAlmenn ákvæði.
1. gr.Lagagrundvöllur og markmið.
Í reglum þessum er kveðið á um útfærslu á stuðningsfjölskyldum fyrir fjölskyldur barna sem sveitarfélaginu er skylt að veita, sbr. reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um stuðning við börn og fjölskyldur, VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991 (hér eftir lög um félagsþjónustu sveitarfélaga), 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018 (hér eftir lög um þjónustu við fatlað fólk), og reglugerð um biðlista, forgangsröðun og úrræði á biðtíma eftir þjónustu, nr. 1035/2018. Þá er einnig stuðst við leiðbeinandi reglur fyrir sveitarfélög um þjónustu stuðningsfjölskyldna samkvæmt lögum nr. 38/2018.
Markmið með stuðningsfjölskyldu er að létta álagi á fjölskyldu þess og gefa barni möguleika á aukinni félagslegri þátttöku.
II. KAFLISkilyrði fyrir veitingu þjónustu.
2. gr.Réttur til þjónustu.
Stuðningsfjölskylda er úrræði ætlað fjölskyldum barna sem eiga lögheimili í Hafnarfirði. Fjölskyldur eiga rétt á stuðningsfjölskyldu eftir því sem þörf krefur, samkvæmt faglegu mati.
Umsækjandi skal uppfylla öll eftirtalin skilyrði til að fá stuðning samkvæmt reglum þessum:
- Umsækjandi og barn/börn hans sem umsókn lýtur að skulu eiga lögheimili í Hafnarfirði þegar sótt er um eða mál viðkomandi barns/barna til vinnslu hjá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar.
- Umsækjandi skal hafa forsjá barns/barna sem umsókn lýtur að.
- Umsækjandi og barn/börn hans skulu vera metin í þörf fyrir stuðning samkvæmt faglegu mati.
Forsjáraðilar fatlaðra barna sem eru með lögheimili utan Hafnarfjarðar geta sótt um stuðning samkvæmt reglum þessum en skilyrði er að umsækjendur skrái lögheimili sitt í Hafnarfirði þegar stuðningur hefst.
3. gr.Inntak þjónustu.
Samningur um stuðningsfjölskyldu miðast við ákveðið tímabil en þó ekki lengur en eitt ár í senn.
Á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk er heimilt að framlengja samning um stuðningsfjölskyldu vegna barns 18 ára og eldra á grundvelli faglegs mats á meðan leitað er að annarri viðeigandi þjónustu. Almennt er ekki gert ráð fyrir því að barn geti á sama tíma verið með stuðningsfjölskyldu og fengið þjónustu skammtímadvalar.
Þjónustan getur mest verið 15 sólarhringar á mánuði. Sé talin þörf fyrir þjónustu í meira en 15 sólarhringa á mánuði í sex mánuði samfleytt skal unnin einstaklingsbundin þjónustuáætlun um aukna aðstoð á heimili barnsins. Þurfi barn annars konar þjónustu en unnt er að veita á heimili fjölskyldu þess samhliða stuðningsfjölskyldu í meira en 15 sólarhringa á mánuði skal vísa málefni þess til sérfræðingateymis til ráðgjafar skv. 20. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk.
Ekki er heimilt að fela stuðningsfjölskyldu umsjá fleiri en tveggja barna í senn nema um systkini sé að ræða.
Þjónusta sem veitt er á grundvelli þessara reglna felur aldrei í sér að stuðningsfjölskylda fái forsjá barns.
III. KAFLIUmsóknarferli, mat og afgreiðsla.
4. gr.Umsókn og mat á þjónustuþörf.
Umsókn um stuðningsfjölskyldu er hægt að nálgast á heimasíðu Hafnarfjarðar, www.hafnarfjordur.is og í þjónustuveri Hafnarfjarðar. Umsókn skal undirrituð eða staðfest með rafrænum skilríkjum af hálfu umsækjanda.
Starfsmenn meta þörf barns fyrir stuðningsfjölskyldu í samráði við forsjáraðila. Við matið er horft til aldurs barns, eðlis og umfangs fötlunar, mats á stuðningsþörf sem og annarrar þjónustu sem veitt er og félagslegra aðstæðna. Einnig er óskað eftir upplýsingum frá fagaðilum ef þörf krefur, með framvísun læknisvottorðs og/eða greinargerð frá viðurkenndum greiningaraðila, þar sem fram kemur mat á þörf viðkomandi fyrir stuðning.
Þjónusta stuðningsfjölskyldu miðast við sólarhringsþjónustu.
5. gr.Afgreiðsla umsóknar.
Að loknu mati er umsókn lögð fyrir deildarfund á fjölskyldu- og barnamálasviði. Afgreiðsla umsóknar byggir á fyrirliggjandi faglegu mati og öðrum gögnum. Niðurstaðan skal vera skrifleg og tilkynnt umsækjanda með formlegum hætti innan sjö daga frá ákvörðun. Sé umsókn hafnað skal umsækjanda jafnframt kynntur réttur hans til áfrýjunar til fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
Sé ekki unnt að hefja þjónustu strax og umsókn er samþykkt skal, á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk, tilkynna umsækjanda um ástæður þess og hvenær þjónustan verði veitt. Ef fyrirséð er að þjónusta sem sótt var um geti ekki hafist innan þriggja mánaða frá samþykkt umsóknar skal leiðbeina umsækjanda um þau úrræði sem hann hefur á biðtíma og aðra þjónustu sem er í boði.
6. gr.Heimild til ákvarðana samkvæmt reglum þessum.
Starfsmenn fjölskyldu- og barnamálasviðs taka ákvarðanir samkvæmt reglum þessum í umboði fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
IV. KAFLISkipulag og framkvæmd.
7. gr.Val á stuðningsfjölskyldu.
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar ber ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustunnar á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk og/eða VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í ábyrgðinni felst meðal annars að val á stuðningsfjölskyldu sé í samræmi við skýrar faglegar kröfur og að stuðningsfjölskylda uppfylli hverju sinni þau skilyrði sem ákvörðun byggist á.
Stuðningsfjölskyldur skulu hafa tilskilið leyfi frá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála. Sótt er um leyfi til að gerast stuðningsforeldri beint til stofnunarinnar. Þjónusta stuðningsfjölskyldu getur ekki hafist fyrr en fjölskyldu- og barnamálasviði Hafnarfjarðar hefur borist fyrrnefnt leyfi frá stuðningsfjölskyldu.
Taka ber tillit til óska forsjáraðila við val á stuðningsfjölskyldu eins og unnt er. Alla jafna skulu amma og afi barns ekki gerast formlegir stuðningsforeldrar fyrir barnabarn sitt, nema í sérstökum undantekningartilvikum þegar það þjónar hagsmunum barnsins að mati starfsmanna fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðar.
8. gr.Hlutverk og ábyrgð stuðningsfjölskyldu.
Verkefni stuðningsfjölskyldu er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í þeim tilgangi að létta álagi á fjölskyldu barns og gefa barni möguleika á aukinni félagslegri þátttöku. Slíkri umsjá fylgir ekki krafa um sérstaka þjálfun eða hæfingu umfram þá daglegu þjálfun sem felst í almennum kröfum sem lúta að barnauppeldi.
Stuðningsfjölskylda er ekki til þess fallin að leysa margþættan eða umfangsmikinn vanda ein og sér en er mikilvægur þáttur í því að styrkja foreldra og barn. Stuðningsfjölskylda ber ábyrgð á velferð barns meðan á dvöl hjá henni stendur og skal hlúa að því í hvívetna. Það á jafnt við í tilfinningalegu, heilsufarslegu og félagslegu tilliti.
9. gr.Samningur og greiðslur til stuðningsfjölskyldu.
Hafnarfjarðarkaupstaður gerir samning við stuðningsfjölskyldur og eru greiðslur í formi verktakagreiðslu. Samningsfjárhæð tekur almennt til stuðningsþarfa barnsins sem dvelst hjá stuðningsfjölskyldunni. Þjónusta hefst þegar barn er komið á heimili stuðningsfjölskyldu eða stuðningsfjölskyldan á heimili barnsins ef því er að skipta.
Ferðir barns við upphaf og lok dvalar teljast ekki til þjónustu stuðningsfjölskyldu nema sérstaklega sé um það samið. Forsjáraðilar barnsins bera ábyrgð á ferðum þess til og frá stuðningsfjölskyldu nema um annað sé sérstaklega samið.
Greitt er fyrir hvern sólarhring og tekur samningsfjárhæðin mið af fjölda sólarhringa sem barnið dvelst hjá fjölskyldunni sem og umönnunarþörf þess.
V. KAFLIEftirlit og upplýsingaskylda.
10. gr.Upplýsingamiðlun og eftirlit.
Fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar veitir, í samvinnu við forsjáraðila barns, stuðningsfjölskyldu viðeigandi upplýsingar um allt það sem er mikilvægt fyrir velferð barnsins, þar á meðal heilsufar þess, ofnæmi, óþol, lyfjainntöku og aðrar sérþarfir.
Stuðningsfjölskylda ber ábyrgð á því að upplýsa fjölskyldu- og barnamálasvið Hafnarfjarðar og forsjáraðila barnsins um allt það sem upp kemur meðan á dvöl stendur og gæti haft áhrif á líðan barnsins. Leitast skal við að stuðningsfjölskylda gefi munnlegar upplýsingar eftir hverja dvöl. Óski forsjáraðili barns eða starfsmenn fjölskyldu- og barnamálasviðs eftir skriflegri staðfestingu á einhverjum atriðum skal orðið við því. Gagnkvæmri upplýsingamiðlun er ætlað að tryggja að framkvæmd sé skilvirk og í þágu þeirra markmiða sem úrræðinu er ætlað að þjóna.
Stuðningsfjölskylda skrifar undir þagnarheit varðandi þær upplýsingar sem hún fær um einkahagi viðkomandi fjölskyldu. Með sama hætti undirgangast forsjáraðilar barns þagnareið um hagi stuðningsfjölskyldu. Þagnarskyldan helst eftir að dvöl lýkur og þegar samningur er útrunninn.
Hafnarfjarðarkaupstaður kannar framkvæmd þjónustunnar á samningstímabilinu, eigi sjaldnar en á tólf mánaða fresti.
VI. KAFLIÁfrýjun, riftun og uppsögn á samningi.
11. gr.Rangar eða villandi upplýsingar.
Þjónusta sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga af hendi þess sem aðstoðina fær er í öllum tilfellum endurskoðuð og samningum rift ef þurfa þykir.
12. gr. Málskot til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Notandi getur skotið ákvörðun teymisfunda til fjölskylduráðs innan fjögurra vikna frá því ákvörðun er tilkynnt. Niðurstöðu fjölskylduráðs Hafnarfjarðar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála. Skal það gert innan þriggja mánaða frá því að notanda var kunngerð ákvörðun fjölskylduráðs Hafnarfjarðar.
VII. KAFLIGildistaka.
13. gr. Gildistaka
Reglur þessar eru settar með stoð í VII. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, og 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018.
Reglurnar voru samþykktar af fjölskylduráði Hafnarfjarðar 21. október 2025.
Reglurnar voru samþykktar af bæjarstjórn Hafnarfjarðar 5. nóvember 2025.
Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 18. nóvember 2025.
Guðlaug Ósk Gísladóttir,
sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs.
B deild — Útgáfudagur: 2. desember 2025