Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Dómsmálaráðuneytið
Málaflokkur
Hjúskapur
Undirritunardagur
27. mars 2020
Útgáfudagur
30. mars 2020
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 271/2020
27. mars 2020
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um stjórnsýslumeðferð hjúskaparmála nr. 230/1992.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- 4. tl. orðast svo: Hverjir eru mættir og eftir atvikum hvort mál sé tekið fyrir í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað samskiptatæki, sbr. 2. mgr. 9. gr.
- Í stað orðanna „lögð eru fram“ í 7. tl. kemur: liggja fyrir.
- Í stað orðsins „frammi“ í 8. tl. kemur orðið: fyrir.
- 10. tl. orðast svo: Í niðurlagi bókunar að hún hafi verið lesin í heyranda hljóði, eftir atvikum í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað samskiptatæki og staðfest rétt af hjónum eða umboðsmönnum þeirra með undirritun þeirra. Heimilt er að óska eftir undirritun eða staðfestingu málsaðila með rafrænum hætti.
2. gr.
Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Ef sérstaklega stendur á að mati sýslumanns getur sýslumaður ákveðið að mál sé tekið fyrir í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað fjarskiptatæki enda verði fyrirtöku málsins háttað þannig að allir heyri þau orðaskipti sem fram fara.
3. gr.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein sem orðast svo:
Ef sérstaklega stendur á að mati sýslumanns getur sýslumaður ákveðið að aðila skuli gefinn kostur á að tjá sig um mál í gegnum síma, fjarfundarbúnað eða annað fjarskiptatæki í samræmi við 2. mgr. 9. gr.
4. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 2. mgr. 133. gr. hjúskaparlaga, nr. 31 14. apríl 1993, öðlast þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 27. mars 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
B deild - Útgáfud.: 30. mars 2020