Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Hafnarfjarðarkaupstaður

Málaflokkur

Skipulagsmál, Hafnarfjörður

Undirritunardagur

6. apríl 2006

Útgáfudagur

25. apríl 2006

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 314/2006

6. apríl 2006

AUGLÝSING

um deiliskipulag lóðar Olíudreifingar, við Hvaleyrarbraut (Lónsbraut), í Hafnarfirði.

Í samræmi við skipulags- og byggingarlög samþykkti skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar, á fundi sínum þann 14. febrúar 2006, deiliskipulag lóðar Olíudreifingar, við Hvaleyrarbraut (Lónsbraut) í Hafnarfirði. Deiliskipulagið tekur til svæðis milli Hvaleyrarbrautar, iðnaðarlóða við Brekkutröð og íbúðarlóða við Hólabraut, Vallarbraut og Suðurbraut, sem skilgreint er sem íbúðasvæði skv. aðalskipulagi Hafnarfjarðar, sbr. breytingu sem staðfest var þann 12. september 2005. Farið var með breytinguna samkv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og hún yfirfarin af Skipulagsstofnun.

Breytingin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og tæknisvið Hafnarfjarðar, 6. apríl 2006.

Anna Sofía Kristjánsdóttir arkítekt.

B deild - Útgáfud.: 25. apríl 2006

Tengd mál