Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Rangárþing ytra
Málaflokkur
Skipulagsmál, Rangárvallasýsla
Undirritunardagur
8. janúar 2026
Útgáfudagur
9. janúar 2026
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 8/2026
8. janúar 2026
AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.
Hróarslækur, óveruleg breyting á deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti 10. desember 2025 tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir Hróarslæk. Með breyttu deiliskipulagi er byggingarmagn aukið á byggingarreit B3 þar sem heimilt verður að byggja vélageymslu á byggingarreitnum í stað gistihúss. Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hellu, 8. janúar 2026.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 9. janúar 2026