Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
26. nóvember 2021
Útgáfudagur
29. nóvember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1343/2021
26. nóvember 2021
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.
1. gr.
Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 37, sem orðast svo:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/883 frá 1. júní 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.
2. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/883 frá 1. júní 2021 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 að því er varðar skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2021 frá 24. september 2021. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 275-289.
3. gr. Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.
Samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytinu, 26. nóvember 2021.
F. h. r.
Valgerður B. Eggertsdóttir.
Eggert Ólafsson.
B deild - Útgáfud.: 29. nóvember 2021