Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Seðlabanki Íslands

Málaflokkur

Evrópska efnahagssvæðið, Tryggingar, Vátryggingar

Undirritunardagur

20. ágúst 2020

Útgáfudagur

3. september 2020

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 860/2020

20. ágúst 2020

REGLUR

um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2020 til 29. júní 2020.

1. gr. Gildissvið.

Reglur þessar gilda um starfsemi innlendra vátryggingafélaga og starfsemi erlendra vátryggingafélaga hér á landi, sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 100/2016, um vátryggingastarfsemi.

2. gr. Upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla.

Samkvæmt 1. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016 um vátryggingastarfsemi skal vátryggingaskuld vera samtala besta mats á skuldbindingum og áhættuálagi. Reglur þessar eru settar til að innleiða framkvæmdarreglugerðir framkvæmdastjórnarinnar (ESB) þar sem fram koma tæknilegar upplýsingar um áhættulausan vaxtaferil fyrir viðeigandi gjaldmiðla samkvæmt 2. mgr. 76. gr. laga nr. 100/2016.

3. gr. Innleiðing reglugerðar.

Með reglum þessum öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/641 frá 12. maí 2020 um tæknilegar upplýsingar fyrir útreikning á vátryggingaskuld og kjarnagjaldþoli vegna gagnaskila með viðmiðunardagsetningar frá 31. mars 2020 til 29. júní 2020 í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga.

Með vísan til heimildar 1. mgr. 78. gr. laga nr. 100/2016 vísar Seðlabanki Íslands til birtingar enskrar útgáfu af framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins (e. Official Journal of the European Union), OJ, deild L, nr. 40, þann 13. maí 2020, bls. 34-133:

https://eur-lex.europa.eu/eli/reg_impl/2020/641/oj.

4. gr. Gildistaka.

Reglur þessar eru settar samkvæmt heimild í 1. mgr. 78. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 100/2016. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Seðlabanka Íslands, 20. ágúst 2020.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Rannveig Júníusdóttir
framkvæmdastjóri.

B deild - Útgáfud.: 3. september 2020

Tengd mál