Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Innviðaráðuneytið
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Flugmál
Undirritunardagur
1. júlí 2025
Útgáfudagur
15. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 798/2025
1. júlí 2025
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð um áhöfn í almenningsflugi, nr. 180/2014.
1. gr.
Við 11. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:
- Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/2076 frá 24. júlí 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) nr. 1178/2011 og (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar nánari skýringu á kröfum varðandi aðstoðarflugmenn sem leysa af í farflugi, uppfærslu krafna varðandi veitingu flugliðaskírteina og heilbrigðisvottorða, og úrbætur á sviði almannaflugs, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 35/2025 frá 7. febrúar 2025, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 33 frá 22. maí 2025, bls. 1.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 83. gr., 93. gr. og 115. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 1. júlí 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild — Útgáfudagur: 15. júlí 2025