Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Hveragerðisbær
Málaflokkur
Gæludýr, Hveragerði
Undirritunardagur
13. desember 2018
Útgáfudagur
18. janúar 2019
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1356/2018
13. desember 2018
GJALDSKRÁ
fyrir hundahald í Hveragerðisbæ.
1. gr.
Þeir sem fá heimild til að halda hund, sbr. 2. gr. samþykktar nr. 555/2007 um hundahald í Hveragerði, skulu greiða gjöld sem hér segir:
| Skráningargjald | kr. | 19.200 | |
| Árgjald fyrir hundaleyfi | kr. | 18.000 |
Árgjaldið greiðist fyrirfram fyrir allt tímabilið með gjalddaga 15. febrúar og eindaga 15. mars. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga verði gjaldið eigi greitt í síðasta lagi á eindaga. Veittur er 25% afsláttur ef eigandi hunds hefur farið á námskeið í hundahaldi og 25% afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega.
2. gr.
Kostnaður vegna handsömunar hunda sem teknir eru lausir skal greiddur af hlutaðeigandi leyfishafa eða umráðamanni hunda sé um leyfislausa hunda að ræða. Sá kostnaður greiðist með handsömunargjaldi sem er eftirfarandi:
| Í fyrsta sinn | kr. | 15.000 | |
| Í annað sinn | kr. | 20.000 | |
| Í þriðja sinn | kr. | 25.000 |
Auk þess skal leyfishafi/umráðamaður hunds greiða geymslugjald vegna geymslu handsamaðs hunds.
3. gr.
Gjaldskrá þessi sem er samþykkt af bæjarstjórn Hveragerðisbæjar þann 13. desember 2018 með tilvísun til heimildar í samþykkt um hundahald í Hveragerði nr. 555/2007 staðfestist hér með samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir og tekur nú þegar gildi. Jafnframt fellur brott gjaldskrá sama efnis nr. 1354/2011.
Hveragerði, 13. desember 2018.
Aldís Hafsteinsdóttir bæjarstjóri.
B deild - Útgáfud.: 18. janúar 2019