Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðisráðuneytið

Málaflokkur

Heilbrigðismál

Undirritunardagur

8. september 2022

Útgáfudagur

9. september 2022

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1019/2022

8. september 2022

REGLUGERÐ

um (1.) breytingu á reglugerð nr. 991/2022 um merkingar á umbúðum sem fylgja skulu nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær.

1. gr.

Við 10. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast ákvæði reglugerðarinnar, önnur en 6. gr., ekki gildi varðandi nikótínvörur fyrr en 1. desember 2022.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 1. mgr. 8. gr. og 2. mgr. 16. gr. laga nr. 87/2018, um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, tekur þegar gildi.

Heilbrigðisráðuneytinu, 8. september 2022.

Willum Þór Þórsson.

Ásta Valdimarsdóttir.

B deild - Útgáfud.: 9. september 2022

Tengd mál