Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra

Málaflokkur

Heilbrigðiseftirlit, Matvæli, Umhverfismál, Húnavatnssýslur, Skagafjörður

Undirritunardagur

9. janúar 2026

Útgáfudagur

6. febrúar 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 114/2026

9. janúar 2026

GJALDSKRÁ

fyrir heilbrigðis-, mengunarvarna- og matvælaeftirlit á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.

1. gr.

Innheimt eru gjöld af starfsemi sem háð er starfsleyfi eða eftirliti Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, lögum um meðhöndlun úrgangs, nr. 55/2003, lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 85/2007, lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002, og lögum um matvæli, nr. 93/1995. Einnig er heimilt að innheimta gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari vegna þjónustu sem er í verkahring heilbrigðiseftirlits að veita skv. ofangreindum lögum.

2. gr.

Tímagjald fyrir þjónustu er 20.000 kr.
Gjald fyrir rannsókn á einu sýni skv. eftirlitsáætlun er 30.000 kr.
Gjald vegna heildarefnagreiningar neysluvatns er 280.000 kr.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra sér um innheimtu eftirlitsgjalda vegna reglubundins eftirlits skv. viðauka með gjaldskrá þessari. Þar kemur jafnframt fram áætluð tíðni eftirlits.

Unnt er að sækja um lækkun gjalda ef starfsemi hefur haft samning við faggilta skoðunarstofu, hefur rekið vottað gæðakerfi eða hefur rekið innra eftirlit með starfsemi sinni sem heilbrigðisnefnd telur ganga lengra en reglur kveða á um. Ef heilbrigðisnefnd fellst á slíka lækkun er henni heimilt að draga úr eftirliti frá sama tíma.

Ef einungis hluti margþætts eftirlits með starfsemi fer fram er heimilt að lækka eftirlitsgjald sem því nemur.

Þegar sami aðili rekur fleiri en eina tegund starfsemi á einum og sama stað er heimilt að innheimta eitt árlegt gjald.

3. gr.

Heilbrigðiseftirlit Norðurlands vestra, annast innheimtu eftirlitsgjalda, samkvæmt gjaldskrá þessari s.s. vegna útgáfu leyfa og vottorða og vegna eftirlits umfram áætlun auk þjónustuverkefna.

Fyrir nýtt starfsleyfi eða eftir atvikum móttöku á skráningu greiðast 35.000 kr. umsýslugjald auk auglýsingakostnaðar og eftirlitsgjalds ef við á. Heilbrigðisnefnd er jafnframt heimilt að innheimta reiknað tímagjald vegna vinnu við gerð sértækra starfsleyfisskilyrða vegna starfsemi sem fellur undir reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.

Fyrir endurnýjun starfsleyfis greiðast 30.000 kr. auk auglýsingakostnaðar og eftirlitsgjalds ef við á.

Fyrir auglýsingu starfsleyfis á vef heilbrigðiseftirlits greiðast 20.000 kr.

Fyrir önnur leyfi s.s. tóbaksleyfisgjöld greiðast 45.000 kr.

Fyrir vottorð og umsagnir skv. fyrirliggjandi gögnum greiðast 32.000 kr.

Fyrir húsnæðisskoðun greiðast 40.000 kr., Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra er þó heimilt að lækka eða fella það niður. Fyrir ítarlega húsnæðisskoðunarskýrslu er greitt skv. tímagjaldi.

Fyrir markaðs og götusölu greiðast 32.000 kr., Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra er þó heimilt að lækka eða fella það niður.

Sé raunkostnaður við rannsókn skv. reikningi frá rannsóknarstofu hærri en sem nemur gjaldi heilbrigðiseftirlits fyrir rannsókn skal innheimta raunkostnað að viðbættu 35% umsýslugjaldi og akstursgjaldi skv. útreikningi fjármála- og efnahagsráðuneytis ef ekki er unnt að samnýta ferðina.

Heilbrigðisnefnd er heimilt að fjölga tímabundið eftirlitsferðum umfram það sem fram kemur í eftirlitsáætlun ef nauðsyn krefur t.d. þegar nýr búnaður hefur verið tekin í notkun eða vegna kvartana. Nefndin innheimtir þá gjald eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

Fyrir starfsemi sem er eftirlitsskyld en er ekki á lista í viðauka greiðist eftirlitsgjald eins og um þjónustuverkefni sé að ræða.

Verk sem unnin eru skv. ákvæðum samþykkta settum samkvæmt lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir eru gjaldfærð eins og um þjónustuverkefni sé að ræða nema um annað hafi verið samið. Fyrir þjónustuverkefni er rukkað tímagjald.

Vegna beitingar þvingunarúrræða skv. XVII. kafla laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarna og XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli skal heilbrigðisnefnd innheimta fyrir kostnaði eins og um aukin eftirlitsverkefni sé að ræða.

4. gr.

Heimilt er að fella starfsleyfi fyrir starfsemi úr gildi ef eftirlitsgjöld skv. 2. gr. eru ekki greidd að undangengnum tilhlýðilegum fresti. Séu gjöld skv. 3. gr. ekki greidd fellur starfsleyfið sjálfkrafa úr gildi. Sama á við ef starfsemi hefur ekki hafist einu ári frá útgáfu leyfis og ef starfsemi hefur legið niðri í tvö ár samfellt.

5. gr.

Gjalddagi eftirlitsgjalda er útgáfudagur reiknings og eindagi 14 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtukostnaðar.

Um innheimtu gjalda fer samkvæmt 46. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir.

6. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra í samræmi við 46. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, 25. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli og 8. gr. laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002. Gjaldskrá þessi öðlast þegar gildi og frá sama tíma fellur úr gildi gjaldskrá fyrir heilbrigðis-, mengunarvarna- og matvælaeftirlit á starfssvæði Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra, nr. 40/2025.

Sauðárkróki, 9. janúar 2026.

F.h. heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra,

Sigríður Hjaltadóttir framkvæmdastjóri.

B deild — Útgáfudagur: 6. febrúar 2026

Tengd mál