Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Sveitarfélagið Árborg

Málaflokkur

Skipulagsmál, Sveitarfélagið Árborg

Undirritunardagur

11. júní 2026

Útgáfudagur

12. júní 2026

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 674/2026

11. júní 2026

AUGLÝSING

um deiliskipulag í Sveitarfélaginu Árborg.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulag félags- og útivistarsvæðis Skátafélagsins Fossbúa.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti 21. janúar 2026 deiliskipulag sem tekur til hluta opins svæðis OP1. Í deiliskipulaginu felst afmörkun útivistarsvæðis sem Skátafélagið Fossbúar munu hafa til afnota. Innan tillögunnar er afmarkað svæði þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu húsnæðis sem hýsir skátastarf í Sveitarfélaginu Árborg auk þess sem afmarkað er útivistarsvæði sem nýtast má skólabörnum yfir veturinn til leikja og fræðslu. Markmið tillögunnar er m.a. að nýta þá innviði sem svæðið hefur upp á að bjóða eins og bílastæði og gönguleiðir. Litlum opnum húsum verður komið fyrir sem hýsa grillaðstöðu ásamt útikennslu barna auk þess sem gert er ráð fyrir góðri tengingu við önnur opin svæði í næsta nágrenni.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Selfossi, 11. júní 2026.

F.h. bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Árborgar,

Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.

B deild — Útgáfudagur: 12. júní 2026

Tengd mál