Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
ISAVIA ohf.
Málaflokkur
Skipulagsmál, Keflavíkurflugvöllur
Undirritunardagur
17. júlí 2025
Útgáfudagur
31. júlí 2025
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 859/2025
17. júlí 2025
AUGLÝSING
um deiliskipulagsbreytingu á norðaustursvæði Keflavíkurflugvallar.
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti 26. júní 2025 breytingu á deiliskipulagi á norðaustursvæði Keflavíkurflugvallar.
Um er að ræða deiliskipulagsbreytingu sem felst í að skilgreind er ný 900 m² lóð fyrir varaaflsstöð og ný 1200 m² lóð fyrir neyðarkyndistöð með viðeigandi tækja- og tengibúnaði. Lóðin Pétursvöllur 34 fellur að sama skapi niður sem og heimild um að reisa aðkomuhús og þjónustuhlið.
Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við ákvæði 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar, 17. júlí 2025.
Björn Ingi Edvardsson skipulagsfulltrúi.
B deild — Útgáfudagur: 31. júlí 2025