Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Háskóli Íslands
Málaflokkur
Menntamál, Háskólar
Undirritunardagur
7. desember 2018
Útgáfudagur
20. desember 2018
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1191/2018
7. desember 2018
REGLUR
um breytingu á reglum nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 84. gr. reglnanna:
- 18. mgr., um MA-nám í þróunarfræðum, fellur niður.
- 2. málsl. núverandi 24. mgr., um diplómanám í þróunarfræðum, orðast svo: Nám þetta er hægt að fá metið inn í meistaranám í hnattrænum fræðum.
- Í stað orðanna „MA-nám á sviði hnattrænna tengsla“ í núverandi 27. mgr. kemur: MA-nám á sviði hnattrænna fræða.
- Í stað orðanna „Diplómanám á sviði hnattrænna tengsla“ í núverandi 28. mgr. kemur: Diplómanám á sviði hnattrænna fræða.
-
Á
eftir
núverandi
28.
mgr.
bætist
við
ný
málsgrein,
svohljóðandi:
Diplómanám í hnattrænni heilsu er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í meistaranám í hnattrænum fræðum.
2. gr.
16. mgr. 92. gr. reglnanna orðast svo:
Diplómanám í smáríkjafræðum: Smáríki í alþjóðakerfinu (Small State Studies: Small States in the International System) er sjálfstætt 30 eininga nám að loknu BA-prófi eða sambærilegu háskólaprófi. Nám þetta er hægt að fá metið inn í MA-nám í alþjóðasamskiptum að uppfylltum inntökuskilyrðum.
3. gr.
Á eftir 13. mgr. 117. gr. reglnanna bætist við ný málsgrein, svohljóðandi:
Diplómanám í faggreinakennslu er sjálfstætt 60 eininga framhaldsnám.
4. gr.
Reglur þessar, sem samþykktar hafa verið í háskólaráði Háskóla Íslands, eru settar í samræmi við lög nr. 85/2008 um opinbera háskóla og öðlast þegar gildi.
Háskóla Íslands, 7. desember 2018.
Jón Atli Benediktsson.
Þórður Kristinsson.
B deild - Útgáfud.: 20. desember 2018