Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Háskóli Íslands

Málaflokkur

Menntamál, Háskólar

Undirritunardagur

14. október 2016

Útgáfudagur

28. október 2016

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 889/2016

14. október 2016

REGLUR

um breytingu á reglum nr. 244/2014 um gjaldskrá Háskóla Íslands vegna þjónustu við nemendur o.fl., og innheimtu og ráðstöfun skrásetningargjalds.

1. gr.

13. gr. reglnanna orðast svo:

Áhugakönnun Strong kr. 12.000
Áhugakönnun Bendill kr. 6.000
Námskeið/vinnustofur 2 stundir kr. 2.000
Námskeið/vinnustofur 4 stundir kr. 4.000
Námskeið/vinnustofur 6 stundir kr. 6.000
Námskeið/vinnustofur 8-10 stundir kr. 8.000
Handbækur (í lausasölu) kr. 2.000
Sálfræðiráðgjöf háskólanema kr. 2.000

Miðað er við meðaltalskostnað við tímakaup ráðgjafa og launakostnað skrifstofu, auk kostnaðar við pappír og prentun.

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur samþykkt að fenginni tillögu kennslusviðs, eru settar með stoð í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. einnig 71. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Reglurnar öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 14. október 2016.

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.

B deild - Útgáfud.: 28. október 2016

Tengd mál