Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Skrifstofa forseta Íslands

Málaflokkur

Heiðursmerki

Undirritunardagur

31. desember 2013

Útgáfudagur

24. janúar 2014

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1312/2013

31. desember 2013

HEIÐURSMERKI FÁLKAORÐUNNAR

Eftirtaldir menn voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu á árinu 2013:

I. Íslenskir ríkisborgarar.

1. janúar 2013:

Eggert Pétursson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar myndlistar.

Eva Sigurbjörnsdóttir hótelstjóri, Djúpuvík, riddarakross fyrir uppbyggingu ferðaþjónustu í dreifðum byggðum.

Helga Birna Gunnarsdóttir þroskaþjálfi, Hafnarfirði, riddarakross fyrir störf í þágu fatlaðs fólks, menntunar og félagsmála þroskaþjálfa.

Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði og rannsóknir á sviði forvarna.

Ingibjörg Einarsdóttir skrifstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til eflingar á lestrarhæfni grunnskólanema.

Kristín Guðmundsdóttir íþróttakennari, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til þjálfunar fatlaðra íþróttamanna.

Kristján Eyjólfsson læknir, Reykjavík, riddarakross fyrir frumkvæði á sviði hjartalækn­inga og framlag til heilbrigðisvísinda.

Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu íslenskrar leiklistar.

Sveinn Elías Jónsson, bóndi og byggingameistari, Kálfskinni, riddarakross fyrir störf í þágu atvinnulífs og félagsmála í heimabyggð.

Þórir Baldursson tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar tón­listar.

17. júní 2013:

Árni Bergmann rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til bókmennta og menn­ingar.

Gísli B. Björnsson, grafískur hönnuður og fyrrverandi skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir brautryðjendastarf í íslenskri grafík og framlag til menntunar hönnuða.

Hilmar Snorrason, skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála sjómanna.

Jóna Berta Jónsdóttir, fyrrverandi matráðskona, Akureyri, riddarakross fyrir störf að mann­úðarmálum.

Kristín Steinsdóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta.

Kristján Ottósson, blikksmíðameistari og framkvæmdastjóri Lagnafélags Íslands, Reykja­vík, riddarakross fyrir forystu í lagnamálum.

Óli H. Þórðarson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Umferðarráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til öryggismála og umferðarmenningar.

Sigrún Einarsdóttir glerlistamaður, Kjalarnesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar ís­lenskrar glerlistar.

Valgerður Sigurðardóttir yfirlæknir, Reykjavík, riddarakross fyrir forystu á vettvangi líknar­meðferðar.

II. Erlendir ríkisborgarar.

28. maí 2013:

Sauli Niinistö, forseti Finnlands, stórkross með keðju; opinber heimsókn til Íslands.

Jenni Haukio, forsetafrú Finnlands, stórkross.

Irma Ertman sendiherra, Finnland, stórkross.

Teemu Tanner forsetaritari, Finnlandi, stórkross.

Paula Kankaanpää prófessor, Finnlandi, riddarakross.

Tero Vauraste forstjóri, Finnlandi, riddarakross.

Lt. Col. Marko Kivelä, Aide-de-Camp, Finnlandi, stórriddarakross með stjörnu.

Tiina Myllyntausta prótókollstjóri, Finnlandi, stórkross.

Jukka Salovaara sviðsstjóri, Finnlandi, stórriddarakross.

Cdr. Kaarle Wikström, Aide-de-Camp, Finnlandi, riddarakross.

Liina Aulin fjölmiðlafulltrúi, Finnlandi, riddarakross.

Mikael Antell sendiráðunautur, Finnlandi, riddarakross.

Lassi Heininen prófessor, Finnlandi, riddarakross.

Anu Lehtinen fjölmiðlafulltrúi, Finnlandi, riddarakross.

5. júní 2013:

Silje Arnekleiv sendiráðsritari, Noregi, riddarakross.

25. júní 2013:

Joachim Gauck, forseti Þýskalands, stórkross með keðju; opinber heimsókn forseta Íslands til Þýskalands.

Daniela Schadt, forsetafrú Þýskalands, stórkross.

22. júlí 2013:

Anders Ljunggren sendiherra, Svíþjóð, stórkross.

23. júlí 2013:

Sören Haslund sendiherra, Danmörk, stórkross.

B deild - Útgáfud.: 24. janúar 2014

Tengd mál