Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið (2017-2022)
Málaflokkur
Evrópska efnahagssvæðið, Siglingar - skip
Undirritunardagur
16. nóvember 2021
Útgáfudagur
30. nóvember 2021
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 1348/2021
16. nóvember 2021
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 666/2001 um öryggi farþegaskipa í innanlandssiglingum, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað I. viðauka kemur nýr I. viðauki, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 302.
Í stað III. viðauka kemur nýr III. viðauki, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 525.
Á eftir III. viðauka kemur nýr viðauki, sem verður IV. viðauki. Hann birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 71, frá 11. nóvember 2021, bls. 518–524.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 40. gr. og 41. gr. skipalaga, nr. 66/2021 og öðlast þegar gildi. Reglugerðin er sett til innleiðingar á framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/411 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2009/45/EB um öryggisreglur og staðla fyrir farþegaskip að því er varðar öryggiskröfur fyrir farþegaskip í innanlandssiglingum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 163/2020, frá 23. október 2020.
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2021.
F. h. r.
Ólafur Kr. Hjörleifsson.
Eggert Ólafsson.
B deild - Útgáfud.: 30. nóvember 2021