Upplýsingar um auglýsingu
Deild
B deild
Stofnun
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið (2022-2025)
Málaflokkur
Félagsmál, Vinnuvernd
Undirritunardagur
2. mars 2023
Útgáfudagur
3. mars 2023
Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
Nr. 211/2023
2. mars 2023
REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:
- Orðin „ , er í óþökk viðkomandi“ í c-lið falla brott.
- Eftirfarandi breytingar verða á d-lið:
- Orðin „er í óþökk þess sem fyrir henni verður og“ falla brott.
- Í stað orðsins „viðkomandi“ kemur: þess sem fyrir henni verður.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 37. gr., 38. gr., 65. gr., 65. gr. a og 66. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, að fenginni umsögn stjórnar Vinnueftirlits ríkisins, öðlast þegar gildi.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 2. mars 2023.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Bjarnheiður Gautadóttir.
B deild - Útgáfud.: 3. mars 2023