Fara beint í efnið

Upplýsingar um auglýsingu

Deild

B deild

Stofnun

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.

Málaflokkur

Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Garðabær, Brunamál, Seltjarnarnes

Undirritunardagur

18. október 2024

Útgáfudagur

3. janúar 2025

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.

Nr. 1707/2024

18. október 2024

GJALDSKRÁ

Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.

I. KAFLI Almennt.

1. gr.

Verkefni Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs. (SHS) ákvarðast annars vegar af lögum um brunavarnir nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim og hins vegar af ákvæðum í stofnsamningi SHS.

2. gr.

SHS innheimtir ferða- og uppihaldskostnað í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

3. gr.

Slökkviliðsstjóra er heimilt að fella niður gjald vegna starfsemi ef verkefni telst þjóna almannahagsmunum og/eða fellur að markmiðum sem SHS eru sett í stofnsamningi.

II. KAFLI Lögbundin verkefni.

4. gr.

Innheimta lögbundinna verkefna SHS ákvarðast af lögum um brunavarnir nr. 75/2000.

Fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 21.700 kr.

5. gr. Umsagnir.

Fyrir umsagnir sem önnur stjórnvöld eða stofnanir óska eftir, skal innheimta 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

6. gr. Öryggis- og lokaúttektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu sem fellur til vegna öryggis- og lokaúttektar, að lágmarki 65.100 kr. Fyrir stærri úttektir skal að auki innheimta 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram þrjá tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

7. gr. Eldvarnaeftirlit.

Fyrir eldvarnaeftirlit sem hefur í för með sér skriflega áminningu vegna þess að brunaöryggi mannvirkis er ekki viðhaldið í samræmi við forsendur útgefins byggingarleyfis og eðli starfseminnar á hverjum tíma skal innheimt fast gjald 86.800 kr. fyrir hverja skoðun. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

8. gr. Eftirlit með búsetu í atvinnuhúsnæði.

Fyrir eftirlit með því hvort fólk tekur sér búsetu í atvinnuhúsnæði án þess að byggingarleyfi samkvæmt lögum um mannvirki hafi verið veitt fyrir breyttri notkun skal innheimta 130.200 kr. fyrir hverja skoðun. Slökkviliðsstjóri getur ákvarðað annað gjald byggt á umfangi verkefnis. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir.

9. gr. Eftirfylgni kröfugerðar.

Fyrir endurkomu vegna eftirfylgni kröfugerðar skal að lágmarki innheimta 43.400 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Þegar eftirfylgni kröfugerðar á sér stað utan tilskilins daglegs vinnutíma starfsmanns skal að lágmarki innheimta 86.800 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Fyrir aðra vinnu við eftirlit og eftirfylgni kröfugerðar skal innheimta 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

10. gr. Eftirfylgni útkalla vegna brunaviðvörunarkerfa.

Sé slökkvilið kallað út vegna boða frá sjálfvirku brunaviðvörunarkerfi án þess að eldur sé laus skal innheimt fyrir kostnaði af eftirliti með því að gerðar séu nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir endurtekin falsboð.

Innheimt skal fast gjald fyrir tvær klukkustundir, 43.400 kr., fyrir eftirlitið. Leiði það hins vegar til frekara eftirlits, vegna ítrekaðra falsboðana eða alvarlegra ágalla á brunavörnum, fellur það undir eftirfylgni kröfugerðar sbr. 9. gr. þessarar gjaldskrár og er þá innheimt samkvæmt því. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

11. gr. Dagsektir.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til frá og með ákvörðun slökkviliðsstjóra um dagsektir og þar til kröfum um úrbætur á eldvörnum hefur verið fullnægt. Innheimtar eru 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir.

12. gr. Öryggisvaktir á mannvirki.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna öryggisvakta í kjölfar ákvörðunar slökkviliðsstjóra um að öryggisvakt skuli sett á viðkomandi mannvirki. Á það jafnframt við um tilfallandi vaktir vegna tímabundinna viðburða þar sem fullum eldvörnum verður ekki við komið eða á meðan unnið er að úrbótum á þeim. Innheimtar eru að lágmarki 86.800 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 30. gr. laga um brunavarnir.

13. gr. Lokun mannvirkis.

Innheimt skal fyrir alla vinnu og akstur sem fellur til vegna lokunar mannvirkis í kjölfar ákvörðunar slökkviliðsstjóra um að loka skuli viðkomandi mannvirki. Innheimtar eru að lágmarki 86.800 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 21.700 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu. Heimild til gjaldtöku byggir á 3. mgr. 29. gr. og 31. gr. laga um brunavarnir.

III. KAFLI Önnur verkefni og þjónusta.

14. gr.

Slökkviliðið sinnir öðrum verkefnum sem eru ekki skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum. Þessi verkefni verða þó að falla að tilgangi slökkviliðsins sem er að vinna að velferð íbúa aðildarsveitarfélaga samkvæmt stofnsamningi, séu þau ekki falin öðrum til úrlausnar í lögum né framkvæmd í samkeppni við aðra aðila. Því ber að taka gjald fyrir veitta þjónustu.

Fast tímagjald samkvæmt 4. gr. fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns er 21.700 kr. fyrir lögbundin verkefni. Að teknu tilliti til samkeppnissjónarmiða, þjálfunar, virkjunartíma og þess að þjónustan er aðgengileg allan sólarhringinn, allt árið er fast tímagjald fyrir hverja byrjaða klukkustund útseldrar vinnu hvers starfsmanns innheimt með 35% álagi. Fast tímagjald fyrir vinnu sem ekki er skilgreind sem verkefni liðsins samkvæmt lögum er því 29.300 kr. nema annað sé sérstaklega tekið fram. Þar sem um sérstakan viðbúnað er að ræða, sbr. 15.-17. gr., er að lágmarki innheimt fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir, eða 234.400 kr.

15. gr. Viðbúnaður vegna eldsvoða og mengunaróhappa.

Í 2. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 kemur fram að lögin gilda um eldvarnir og slökkvistörf vegna eldsvoða og viðbúnað við mengunaróhöppum á landi nema kveðið sé á um annað í lögunum. Þau gilda enn fremur um björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum með sérhæfðum björgunarbúnaði. Lögin ná til starfsemi slökkviliða á landi, þ.m.t. slökkvistarfa í jarðgöngum, í skipum sem liggja í höfn og loftförum sem eru á jörðu niðri.

Slökkvistörf og viðbúnaður við mengunaróhöppum á sjó og í lofti falla hins vegar ekki undir lögin, né heldur eldvarnir í skipum með haffærisskírteini, loftförum, almennum vinnuvélum, bifreiðum eða öðrum vélknúnum ökutækjum. Slökkviliðsstjóri metur það hverju sinni hvort sinna skuli beiðnum um verkefni sem liggja fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni slíku ólögboðnu verkefni skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal að lágmarki 234.400 kr., auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

16. gr. Viðbúnaður vegna upphreinsunar.

Upphreinsun sem fellur ekki undir skilgreiningu 3. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000 á mengunaróhappi er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 234.400 kr., auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

17. gr. Viðbúnaður vegna verðmætabjörgunar og vatnsleka.

Verðmætabjörgun sem ekki er tilgreind í lögum um brunavarnir, t.d. vegna vatnsleka, er sinnt af slökkviliði þótt ekki sé mælt fyrir um það í lögum um brunavarnir, meðan ekki eru aðrir þar til hæfir aðilar tiltækir til að sinna verkefninu. Er það mat slökkviliðsstjóra hverju sinni hvenær sinna skal beiðnum um verkefni fyrir utan gildissvið laganna.

Ef óskað er eftir því að slökkviliðið sinni verkefni sem fellur utan gildissviðs laganna skal lágmarksgjaldtaka vera fyrir fjóra starfsmenn í tvær klukkustundir ef ekki liggja fyrir samningar um annað. Innheimta skal því að lágmarki 234.400 kr., auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvær fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

18. gr. Ráðgjafarþjónusta.

Falli ráðgjafarvinna undir ákvæði stjórnsýslulaga um upplýsinga- og leiðbeiningaskyldu skal sú vinna undanþegin gjaldi. Ef ráðgjafarvinnan er fyrir utan ákvæði d-liðar 1. mgr. 12. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000, um leiðbeiningar til fyrirtækja og stofnana eftir atvikum um hvaðeina er varðar brunavarnir og eldsvoða vegna viðkomandi starfsemi, er þjónustan gjaldskyld. Innheimtar eru 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

19. gr. Úttektir utan skoðunaráætlunar.

Fyrir úttektir sem eigandi eða forráðamaður mannvirkis óskar eftir og falla utan skoðunaráætlunar SHS skal að lágmarki innheimta 58.600 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram tvo tíma, fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu.

Fyrir skoðun og ráðgjöf hjá húsfélögum fjölbýlishúsa skal innheimt fast gjald 44.000 kr.

20. gr. Tækjaleiga.

Tækjaleiga er ekki fyrirskrifuð í lögum um brunavarnir. Þó er eðlilegt að leigja tæki sem eru þess eðlis að ekki er hægt að leigja þau hjá öðrum aðilum eða ef aðstæður kalla á skjóta notkun sem aðrir aðilar geta ekki boðið.

Verðlagning er ákveðin þannig að hún sé ávallt í það minnsta 35% hærri en leiga á svipuðum eða sambærilegum tækjum sem aðrir geta útvegað til að tryggja samkeppnissjónarmið. Oftast er um að ræða dælu- eða körfubíla, t.d. vegna kvikmyndagerðar eða einhverrar uppákomu sem kallar á slíkan búnað. Verðlagningu á tækjum skal endurskoða við hverja breytingu á gjaldskrá þessari.

Tæki SHS skulu aðeins notuð af starfsmönnum slökkviliðsins. Innheimtar eru að lágmarki 117.200 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma, auk tækjaleigu.

21. gr. Fylgd vegna sprengiefnaflutninga.

Sprengiefnafylgd er ekki áskilin í lögum um brunavarnir heldur er kveðið á um slíka fylgd í lögreglusamþykkt Reykjavíkur og veitir lögreglustjóri ekki heimild til flutnings nema í fylgd slökkviliðs. Innheimtar eru að lágmarki 117.200 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

22. gr. Annað.

Innheimt skal gjald fyrir aðra vinnu sem ekki er tilgreind hér og ekki er mælt fyrir um í lögum eða er í samræmi við stofnsamning SHS. Innheimt er fyrir tæki samkvæmt 16. gr. og að lágmarki 117.200 kr. fyrir hvern starfsmann sem sinnir verkefninu, auk 29.300 kr. fyrir hverja byrjaða klukkustund umfram fjóra tíma.

Getur þetta átt við um þjónustu vegna sérstakra verkefna eins og kvikmyndatöku, móttöku erlendra þjóðhöfðingja eða sendimanna, menningarviðburða o.fl. þess háttar.

IV. KAFLI Innheimta.

23. gr.

SHS annast innheimtu gjalda samkvæmt gjaldskrá þessari eða innheimtufyrirtæki sem verkefnið er falið samkvæmt samningi þar að lútandi. Um innheimtu gjalda skal fara eftir viðteknum venjum í innheimtu opinberra stofnana. Gjalddagi gjalda samkvæmt gjaldskránni er útgáfudagur reiknings og eindagi er 30 dögum síðar. Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga.

Gjöldum sem til eru komin vegna öryggis- og lokaúttekta, sem og aðgerða til að knýja fram úrbætur samkvæmt lögum, sbr. 5. gr. t.o.m. 10. gr., fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð, sbr. 3. mgr. 12. gr. og 3. mgr. 29. gr. laga um brunavarnir nr. 75/2000.

V. KAFLI Gildistaka og lagastoð.

24. gr.

Gjaldskrá þessi, sem sett er með heimild í lögum nr. 75/2000 og reglugerðum settum samkvæmt þeim, er samin og samþykkt af aðildarsveitarfélögum SHS, með heimild í 1. mgr. 92. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Gjaldskráin er einnig samþykkt af stjórn SHS. Gjaldskráin öðlast gildi við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda og fellur þar með úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1731/2023.

F.h. stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs., 18. október 2024,

Ásdís Krisjánsdóttir varaformaður.

B deild - Útgáfud.: 3. janúar 2025

Tengd mál